311, Borgarnes

Skorradalur, vatnsendahlíð 206

4.500.000 KR
Lóð
5852 m 2

YFIRLIT

  • Tegund Lóð
  • Stærð 5852 M²
  • Herbergi 0
  • Stofur 0
  • Svefnherbergi 0
  • Baðherbergi 0
  • Inngangur Sér
  • Byggingarár 0
  • Lyfta Nei
  • Bílskúr NEI

LÝSING

RE/MAX og Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu:
SUMARBÚSTAÐARLÓÐ AÐ VATNSENDAHLÍÐ 206, Í SKORRADALNUM. Kalt vatn og rafmagn komið að lóðarmörkum.
Í nærumhverfi er Krauma, Bifröst, Hraunfossar, Reykholt, Húsafell, Borgarnes og því stutt að fara í alla helstu þjónustu, sund, golf ofl. og því hægt að fara í skemmtilegar í dagsferðir í nágrenninu.

SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS

Um er að ræða 5.852,0 fm leigulóð við Vatnsendahlíð 206 á kjarri vaxinni lóð með fallegu útsýni yfir Skorradalsvatn. Góð aðkoma er frá Skorradalsvegi. Malbikað er alla leið að afleggjara að lóðinni.
Búið er að samþykkja byggingarleyfi fyrir sumarbústað úr timbri að hámarksstærð 99,5 fm.
Kalt vatn og rafmagn komið að lóðarmörkum. 
Lóðarleigusamningur er til 20 ára í senn og er bundinn vísitölu. Leiguverð er í dag í kringum 186.000 kr á ári.
Skilyrði er fyrir þátttöku í félagi allra frístundahúsaeigenda á svæðinu en árgjald er í kringum 20.000 kr á ári.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt stærð lóðarinnar 5.852,0 fm.

Lóðin er í u.þ.b. klukkutíma akstri frá Reyjavík
Leiðarlýsing:  Frá Reykjavík er ekið í átt að Borgarnesi og beygt til hægri áður en komið er að brúnni við Borgarnes inn á Borgarfjarðarbraut (þjóðvegur 50). Ekið er áfram þangað til komið er að hægri beygju inn á Skorradalsveg (Þjóðvegur 508). Keyrt er í ca. 10 mínútur og er þá lóðin þar á vinstri hönd.

Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali s: 699-6617 eða á [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Starfsmanni fasteignasölunnar hefur ekki verið bent á aðra galla á eigninni en fram koma í söluyfirliti þessu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna
·      Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunnar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk