YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 100 M²
-
Herbergi 3
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 2
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sér
-
Byggingarár 2021
-
Lyfta Já
-
Bílskúr NEI
LÝSING
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu: Vel skipulögð og flott þriggja herbergja 100,4 fm íbúð á 2. hæð í fimm hæða lyftufjölbýli við Holtsveg 57, 210 Garðabæ með 14,8 fm svalir.
Gólfhiti er á allri íbúðinni og góð lofthæð. Íbúðin er afhend fullbúin með gólfefnum, baðherbergi og þvottarými eru flísalögð.
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið [email protected]SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD (3-D) MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉRNánar um íbúð 0202: Eignin er þriggja herbergja íbúð á 2. hæð hússins, merkt 0202. birt stærð 94,8 fm. Eigninni tilheyrir geymsla á fyrstu hæð, merkt 0112, birt stærð 5,6 fm. og svalir á 2. hæð, merktar 0209, stærð 14,8 fm. Birt stærð séreignar er 100,4 fm.
Innréttingar eru frá HBH. Innihurðir eru yfirfelldar og rennihurð innfelld í vegg. Borðplötur í eldhúsi og inn á baðherbergi eru með 30mm plastlagðri borðplötu. Blöndunartæki frá Mora. Í eldhúsi er helluborð, fjölvirkur bakarofn með blæstri. Innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Yfir eyju er háfur, niðurhangandi gufugleypir. Tæki eru frá Electrolux. Á baðherbergi er upphengt salerni. Sturta eru flísalögð og með gler á einni hlið. Blöndunartæki eru einnar handar í borði og sturtutæki á baðherbergi er frá Mora. Inn af baðherbergi er þvottaherbergi með tengingar fyrir þvottavél, innréttingar eru með þeim hætti að þvottavél/þurrkara er lyft upp í vinnuhæð með skúffur fyrir neðan. Vaskur í þvottahúsi er felldur í einfalda borðplötu af sömu gerð og í eldhúsi með skúffum að neðan.
Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma
661-6056 /
[email protected] og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma
862-2001 /
[email protected]Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-