YFIRLIT
-
Tegund Fjölbýli
-
Stærð 162 M²
-
Herbergi 3
-
Stofur 1
-
Svefnherbergi 2
-
Baðherbergi 1
-
Inngangur Sameig.
-
Byggingarár 2022
-
Lyfta Já
-
Bílskúr JÁ
LÝSING
Opið hús: 01. október 2023 kl. 16:00 til 16:30.Opið hús: Arnarhlíð 4 ÞAKÍBÚÐ (501) , 102 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 05 01. Eignin verður sýnd sunnudaginn 1. október 2023 milli kl. 16:00 og kl. 16:30.
SÝNUM DAGLEGA!!
DALHÚS kynnir í samstarfi við Guðlaugu Jónu fasteignasala s. 661-2363 eða [email protected] og Garðar Hólm fasteignasala s. 899-8811 eða [email protected]:
Til sölu glæsilegar nýjar íbúðir við Arnarhlíð 4, Hlíðarendahverfinu í Reykjavík. 9 íbúðir eru í húsinu frá 74,8 fm – 162,0 fm. Verð frá 69.900.000 kr - 162.000.000 kr. Íbúðir skilast fullbúnar með gólfefnum. Baðherbergin eru með flísum á gólfum og veggir flísalagðir með marmaraáferð. Flísar eru á gólfi í þvottahúsum. Í eldhúsi eru Nobila innréttingar frá GKS með innbyggðri uppþvottavél og ísskáp með frysti. Innréttingarnar eru ýmist hvítar, svartar með viðaráferð eða hnota. Raftæki eru frá AEG og eða Bora. Veggljós eru uppsett í alrýmum íbúða þar sem gert er ráð fyrir þeim. Í öllum 3ja og 4ra herbergja íbúðum er sér þvottahús. Húsið er einangrað að utan og klætt með álklæðningu. Aðalhönnuður er KRark, Kristinn Ragnarsson arkitekt.
Sérmerkt bílastæði í bílakjallara fylgja hverri íbúð.
Eignirnar eru lausar til afhendingar við kaupsamning.***TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3D OG GANGA Í GEGNUM HANA SMELLTU HÉR***Smelltu hér fyrir heimasíðu verkefnisins og skilalýsingu.***Myndirnar eru af eigninni sjálfri*** Íbúð: 0501
Hæð: 5
Tegund: 3ja herbergja
Stærð: 162 m²
Geymsla: 15,6 m²
Stæði í bílageymslu: Merkt B01
Bílskúr: 28,1 m²
Einstaklega vönduð og falleg 3ja herbergja þakíbúð íbúð, merkt: 501 (Hæð 5). Nánari lýsing:Forstofa er mjög rúmgóð með góðum PAX fataskápum og harðparketi á gólfi.
Eldhús er rúmgott með góðu skápa- og vinnuplássi. Innnrétting úr hnotu með svörtum efri skápum sem nær alveg upp í loft. Dökkgrá borðplata. Spahelluborð frá Bora með innbyggðum gufugleypi er í eyjunni. Innbyggður ísskápur- og uppþvottavél. Bakarofn og combi ofn frá AEG.
Borðstofa/stofa er einstaklega rúmgott opið rými við eldhús. Þaðan er gengið út á tvennar svalir. Annarsvegar suðvestur svalir sem eru timburlagðar og snúa í inngarð. Hinsvegar stórar þaksvalir.
Þvottahús er inn af eldhúsi með skolvask, borðplötu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum PAX fataskápum, harðparket á gólfi.
Herbergi II & III eru með fataskápum frá PAX og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Skúffueining með hvítri postulín handlaug og hringspegli með baklýsingu. Walk-in sturta með grunnum sturtubotni og glerskilrúmi. Upphengt salerni og handklæða ofn.
Þaksvalir eru 91,6 m² og er gengið út um rennihurð í stofu á þær. Að hluta til er timpurpallur og svo er gerfi gras. Þær eru með flottu útsýni yfir Valsvöllinn.
Sérgeymsla er í sameign í kjallara 15,6 m²
Bílskúr er í kjallara og er hann 28,1 m² á stærð. Sérstæði fyrir framan hann er merkt B01
Helstu eiginleikar:- Eina íbúðin á hæðinni
- Stæði í bílageymslu
- Einangrað að utan
- Mikið skápapláss
- Uppþvottavél fylgir
- Ísskápur með frystir fylgir
- Búið er að setja upp ljós í öllum rýmum
- Gólfefni fylgja
- Þakgarður
Allar nánari upplýsingar veita:
Guðlaug Jóna fasteignasali s. 661-2363 eða [email protected]
Garðar Hólm fasteignasali s. 899-8811 eða [email protected]