Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna Mávatjörn 28, Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ. fnr. 228-2876 Húsið er byggt árið 2005. Húsið er parhús og er byggingarefni timbur. Birt stærð er 114,5 fm og er íbúðarhluti skráður 91,8 fm og bílskúr er skráður 22,7 fm. Húsið stendur á lóð sem er skráð 471 fm. Sjá má gólfteikningar af eigninni þar sem ljósmyndir eignarinnar eru.
FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.Nánari lýsing:Aðkoma: Hellulagt bílaplan og að inngangi í húsið með hitlögn undir.
Forstofa: Flísar á gólfi. Rúmgóður fataskápur úr eik.
Eldhús: Flísar á gólfi. Sérsmíðuð vönduð innrétting úr eik. Tveir bakstursofnar ásamt nýju spansuðuhelluborði. Háfur úr burstuðu stáli.
Stofa/borðstofa/sjónarpsrými: Flísar á gólfi. Útgengt út á góðan sólpall með skjólveggjum sem snýr til suð-vesturs.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Vönduð innrétting með ofanáliggjandi handlaug. Sturtuklefi. Upphengt salerni.
Svefnherbegi: Eru tvö og er parket á gólfum þeirra beggja og fataskápar úr eik.
Þvottahús: Er inn af bílskúr með vandraðri innréttingu og eru þvottavél og þurrkari í vinnuhæð. Skolvaskur.
Bílskúr: Flísar á gólfi.
Lóð: Falleg gróin lóð með grasflöt og trjágróðri. Góður sólpallur til suð-vesturs með skjólveggjum.
Mávatjörn 28 er mjög snyrtilegt parhús með bílskúr í Innri Njarðvík. Húsið er rúmgott, bjart og vel skipulagt með sérgarði og sólríkri verönd. Tvö svefnherbergi eru í húsinu ásamt stóru baðherbergi, þvottahúsi og vönduðu eldhúsi. Garðurinn er afar vel hirtur og fallegur í alla staði. Hellulagt, upphitað bílaplan framan við hús. Fataskápar ásamt innréttingum í eldhúsi og baðherbergi sérsmíðaðar. Hiti í gólfum. Byggingarefni hússins er timbur á steyptum grunni. Húsið stendur neðst í botnlanga rólegs hverfis, þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun, útivist og þjónustu. Birt stærð eignarinnar er 114.5m2, þar ef bílskúr 22.7m2.- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Allar nánari
upplýsingar veita
Dagbjartur Willardsson lgf. í síma
861-7507 eða
daddi@remax.is. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. (Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4%)
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - sjá heimasíður lánastofnanna.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900. kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.