RE/MAX ásamt Guðlaugu Jónu lgf. og Garðari Hólm lgf. kynna: Bjart og fallegt 5 herbergja raðhús með bílskúr við Ósabakka 9 í Reykjavík.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 215,7 fm þar af bílskúrinn 20 fm.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svo sem leikskóla, skóla, matvörubúð og í Mjóddina.
Nánari lýsing:Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi.
Gestasalerni er inn af forstofu með upphengdu salerni, hvít innrétting með handlaug. Flísar á gólfi.
Eldhús er með endurnýjaðri innréttingu með góðu skápaplássi. Innbyggð uppþvottavél. Gott pláss fyrir eldhúsborð. Flísar á gólfi.
Borðstofa/Stofa er samliggjandi opið rúmgott rými á efri palli. Parket á gólfi. Efri gluggar eru í stofunni svo það eru gluggar á tvo vegu sem gerir rýmið einstaklega bjart. Úr stofunni er útgengt á stórar vestursvalir með fallegu útsýni.
Hjónaherbergi er á neðri hæð með upprunalegum skápum. Parket á gólfi og er útgengi á lóð.
Herbergi II er með parketi á gólfi.
Herbergi III er með parketi á gólfi.
Herbergi IV er með máluðu gólfi.
Baðherbergi er rúmgott. Upphengdu salerni, sturtu og baðkari. Flísar á gólfi og veggjum.
Hol er milli eins herbergis og þvottahús, það nýtist vel sem sjónvarpsherbergi. Útgengi er úr holi.
Þvottaherbergi er mjög rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Undir stiga eru tvær litlar geymslur önnur með skolvask.
Bílskúr er 20 fm.
Lóðin baka við hús er með stórum palli og glerskála sem nýtist sem setustofa.
Endurbætur:
- Baðherbergi endurnýjað 2014
- Eldhús endunýjarað 2015
- Járn á þaki endurnýjað 2018
- Pallur gerður 2018
Nánari upplýsingar veita:
Guðlaug Jóna lgf. í gegnum gulla@remax.is eða í s. 661-2363
Garðar Hólm lgf. í gegnum gardar@remax.is eða í s. 899-8811