RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu rúmgóða og fallega 4 herbergja íbúð á fyrstu hæð við Ásakór 11 í Kópavogi. ✅ Rúmgóð svefnherbergi
✅ Mögulegt að bæta við svefnherbergi
✅ Rúmgott og bjart alrými, 65,8 fm
✅ 14,6 fm flísalagðar svalir
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sérgeymslu í sameign. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 158,2 fm, þar af er íbúðin 150,1 fm og geymslan 8,1 fm.Nánari lýsing:Forstofa: Rúmgott rými. Parket á gólfi og fataskápur
Eldhús: Parket á gólfi. Falleg eikarinnrétting með eyju, bakaraofn í vinnuhæð, helluborð með viftu og vaskur.
Stofa/stofa: Parket á gólfi. Rúmgott rými. Útgengt út á rúmgóðar flísalagðar svalir. Mögulegt að bæta við fjórða svefnherberginu í stofunni.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parket á gólfi.
Barnaherbergi 1: Rúmgott herbergi með parket á gólfi og fataskáp.
Barnaherbergi 2: Rúmgott herbergi með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Eikarinnrétting, sturtuklefi, baðkar, handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús: Flísar á gólfi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vinnuborð með vaski. Hillur á vegg.
Geymsla: Staðsett í sameign hússins.
Húsfélagið er búið að setja upp hleðslustöðvar á lóðinni. Eignin er staðsett a eftirsóttum stað í Kópavogi þar sem öll þjónusta er fyrir hendi. Góð eign fyrir fólk með börn, þar sem örstutt er í Kórinn, og alla íþróttaaðstöðu, hesthús og Guðmundarlund sem er útivistar- og ræktunarsvæði Skógræktarfélags Kópavogs og þar er hagt að fá leigða matjurtargarða. Verslun- og þjónusta, Hörðuvallaskóli og leikskólarnir Austurkór, Baugur og Kór i göngufæri.
Allar frekari upplýsingar veitir Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is