RE/MAX Ísland logo
Opið hús:24. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 19. sept. 2026
Söluyfirlit

Hraunbrún 28

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
165.6 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
126.500.000 kr.
Fermetraverð
763.889 kr./m2
Fasteignamat
110.250.000 kr.
Brunabótamat
87.000.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Brynjar Ingólfsson
Brynjar Ingólfsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1910
Þvottahús
Garður
Gæludýr leyfð
Margir inngangar
Fasteignanúmer
2075888
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
St+timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Virkar
Raflagnir
Óvitað
Frárennslislagnir
Óvitað
Gluggar / Gler
Þokkalegt
Þak
Eldra
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Vantar ofna á miðhæð.
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Einbýlishús ásamt bílskúr á einstakri lóð rétt við Víðistaðatún.

- 4 svefnherbergi í dag en hægt að vera með 5
- Fyrirhuguð stækkun lóðar úr 487,1 m² í 717,1 m² samkvæmt tillögu að deiliskipulagsbreytingu
- SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D (LINKUR KEMUR INNAN SKAMMS)

Eignin er skráð hjá FMR 165,6 m², þar af er íbúðin 132 m² og bílskúrinn 33,6 m².


Miðhæð
Gengið er inn í anddyrið á miðhæðinni. Gólfið er flísalagt með opnu fatahengi.
Baðherbergið er flísalagt með baðkari. Gluggi fyrir loftun.
Stofan er rúmgóð og björt með upprunalegum gólffjölum sem voru slípaðar árið 2024.
Eldhúsið er með kork á gólfi og borðkrók. Stæði fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp. Ofn í vinnuhæð. Útgengt er út í bakgarðinn frá eldhúsinu.
Rishæð
Frá stofunni er gengið upp í bjart hol.
Herbergi 1 er rúmgott með glugga og þakglugga. Opið fatahengi.
Hjónaherbergið er með opnum fataskáp, þakglugga og útgengt út á svalir.

Kjallari
Herbergi 3 er rúmgott með parket á gólfi.
Herbergi 4/5 er stórt en var áður tvö herbergi. Auðvelt er að setja aftur upp vegg á milli og þá væru aftur þrjú svefnherbergi í kjallaranum.
NA-herbergi í kjallara var endurnýjað árið 2024, m.a. gólfefni, raflagnir, loftaeinangrun og loftaklæðning.
Þvottahús með innréttingu, vinnuvaski, sturtu og glugga fyrir loftun. Blöndunartæki fyrir heita pottinn er í þvottahúsinu.
Salerni með klósetti og vaski. Flísar á gólfi.
Geymsla er við stóra herbergið (óupphituð).
Útgengt er út í bakgarðinn frá kjallaranum og því stutt að fara í pottinn.

Garðurinn
Lóðin er einstaklega falleg og er garðurinn sannkallaður ævintýragarður. Húsið stendur alveg við hraunið og myndast þar mjög skjólgóður staður bak við húsið. Heitur pottur var settur í garðinn árið 2020. Pallur var slípaður árið 2025, framgarður tyrfður og gangstígur hellulagður.
Fyrir liggur tillaga að breytingu á deiliskipulagi þar sem gert er ráð fyrir að lóðin stækki úr 487,1 m² í 717,1 m². Um er að ræða um 230 m² hraunsvæði sunnan við húsið sem myndi bætast við lóðina. Stækkunin felur ekki í sér aukinn byggingarrétt og óheimilt er að raska hrauninu

Bílskúrinn
Heitt og kalt vatn ásamt rafmagni er í bílskúrnum. Rafdrifin hurð og inngönguhurð á hlið bílskúrsins. Gluggar með opnanlegum fögum.

Framkvæmdir og viðhald 2024–2025
Á síðustu árum hefur verið farið í töluverðar framkvæmdir og viðhald á eigninni. Árið 2025 var drenað meðfram norður- og austurhlið hússins að bílskúr og afrennsli af þaki veitt í púkkgryfju. Olíugeymir var fjarlægður, framgarður tyrfður, gangstígur hellulagður og pallur slípaður. Kaldavatnsinntak var endurnýjað frá götu og inn í grind og hitaveituinntaksloki endurnýjaður inni í húsi.
Ídráttarrör voru lögð í jörð frá rafmagnstöflu fyrir tengla í garði og með fyrirhugaða uppfærslu á bílahleðslu í huga. Skólplögn var mynduð frá miðju húsi og út í brunn. Steypurör eru að hluta næst húsinu en enginn galli fannst við myndun.
Árið 2024 voru raflagnir endurnýjaðar að hluta. NA-herbergi í kjallara var endurnýjað, þar á meðal gólfefni, raflagnir, loftaeinangrun og loftaklæðning. Þá voru gólffjalir í stofu slípaðar.

Staðsetningin er einstaklega góð, rétt við Víðistaðaskóla og Hjalla. Stutt er í alla helstu þjónustu.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is
Byggt 1999
33.6 m2
Fasteignanúmer
2075888
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
16.450.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Hraunkambur 1
220 Hafnarfjörður
195.1 m2
Einbýlishús á þremur hæðum
624
712 þ.kr./m2
139.000.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Axlarás 10B
221 Hafnarfjörður
160.6 m2
Raðhús á einni hæð
413
800 þ.kr./m2
128.400.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Axlarás 10A
221 Hafnarfjörður
160.6 m2
Raðhús á einni hæð
413
800 þ.kr./m2
128.400.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Klukkuvellir 34
221 Hafnarfjörður
136 m2
Raðhús á einni hæð
413
845 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin