RE/MAX Ísland logo
Skráð 15. ágúst 2026
Söluyfirlit

Sléttuvegur 1

SumarhúsSuðurland/Flúðir-846
146.7 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
108.500.000 kr.
Fermetraverð
739.605 kr./m2
Fasteignamat
71.550.000 kr.
Brunabótamat
86.450.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2011
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2323259
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:

Vandað og vel skipulagt 88,7 fm. sumarhús með sér 21,2 fm. gestahúsi og sér 36,8 fm. bílskúr við Sléttuveg 6, 846 Hrunamannahreppi/Flúðum. Heildarstærð er 146,7 fm. 

Um er að ræða vandað, vel staðsett og vel byggt hús í nálægð við golfvöllinn og golfklúbbinn Flúðir.

Glæsileg lóð, vel hirt og gróinn með fallegum trjágróðri allt í kring ásamt litlu timburhúsi og rólu. Húsið, gestahúsið og bílskúrinn er timburhús byggt á steyptri plötu með gólfhita. Aukalega er svo lítið timburhús á lóðinni fyrir sláttu traktor, sláttuvélar ofl. 

Stór og flott timburverönd með heitum potti. Verönd er skjólgóð og snýr vel á móti sól. Flott og góð aðkoma er að húsinu. 

Mjög stutt er út á golfvöllinn, í verslun, veitingastaði og ýmsa þjónustu á Flúðum. Heitt og kalt vatn er tengt á veitukerfi Flúða (Hrunamannahrepps). 

Allt innbú fylgir með að undanskildum persónulegum munum seljenda. 

Smelltu á linkinn til að skoða sumarhúsið í 3D

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Nánari lýsing: 


Góð aðkoma er að aðalhúsinu sem er 88,7 fm. og gott pláss fyrir bílastæði. Komið er inn í forstofu með fatahengi og aðgengi í önnur rými hússins. 
Harðparket á gólfum að undanskildu baðherbergi, þar eru flísar. Gólfhiti er á öllu húsinu. Alrýmið er bjart og rúmgott með stofu, borðstofu og eldhús. Útgengi er þaðan út á verönd í suð-vestur með skjólveggjum og yfirbyggt að hluta. 
Eldhúsinnrétting er U-laga með gott vinnu- og skápapláss. Uppþvottavél, bökunarofn og helluborð með kolasíu viftu þar fyrir ofan og frístandandi ísskáp þar við hlið. Gluggar gefa góða birtu inn. Svefnherbergisgangur er með rúmgott hjónaherbergi með fataskáp í, þar að auki eru tvö önnur svefneherbergi. Baðherbergið er stórt og gott, dökkar flísar á gólfi og hvítar flísar á  veggjum. Hvít baðinnrétting með handlaug og skúffum þar undir. Baðskápur þar við hlið og sepegil með lýsingu í fyrir ofan handlaug. Upphengt salerni og handklæðaofn. Sturta með gler hurð til að loka af. Gluggi og sér hurð út á verönd, þar er heitur pottur á verönd í skjólgóðu umhverfi og aðgengi að sér þvottahúsi/lagnarými með glugga sem veitir birtu inn, flísum á gólfi og tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. 

Gestahúsið er 21,2 fm. Þar er harðparket á gólfi og gólfhiti. Herbergi er með opnanlegum glugga og sér salerni með handlaug og opnalegum glugga í því rými. Frábær viðbót við húsið. Á hinum enda gestahússins er annar inngangur sem eigandi hefur nýtt sem geymslu. Auðvelt væri að breyta því í annað svefnherbergi eða stækka gestasvítuna sem því nemur. ( skráð sem geymsla ) 

Bílskúrinn er 36,8 fm. Gólfhiti, heitt og kalt vatn og rafdrifinn hurð. Gluggar veita birtu inn. ( skráð sem geymsla )

Auk þess er lítið timburhús á lóðinni sem nýtt er sem geymsla fyrir sláttutraktor og sláttuvél ofl. 

Húsið var byggt árið 2011, gestahúsið var byggt árið 2014 og bílskúrinn var byggður árið 2024. Allar framkvæmdir og allt viðhald við húsið virðist vera til fyrirmyndar líkt og sjá má við sjónskoðun á húsinu, bílskúrnum og á lóðinni í heild sinni.

Lóðin er 5.217,3 fm. leigulóð leigð til 50 ára í senn, samningur er frá 12. ágúst 2010 til 12. ágúst 2060 og framlengis sjálfkrafa í 5 ár í senn, ef hvorugur aðili segir upp leigunni. Leigugjald fyrir hið leigða land er 57.060 kr á ári, leigan er verðtryggð miðað við vísitölu byggingarkostnaðar, 497 stig þann 01.nóvember 2009, og miðast verðtyggingarálag leigugjaldsins við 1 nóvember ár hvert. Nálgast má leigusamning hjá fasteignasala. Uppreiknað er leigan rúmar 100.000 kr.

Nánari upplýsingar: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-
Byggt 2014
21.2 m2
Fasteignanúmer
2323259
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.950.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 2024
36.8 m2
Fasteignanúmer
2323259
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
17.300.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Suðurbakki 3
805 Selfoss
144.2 m2
Sumarhús
413
777 þ.kr./m2
112.000.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin