RE/MAX kynnir: Tveggja herbergja íbúð á 2.hæð með sér inngang í góðu fjölbýli við Laufrima 26, 112 Reykjavík. Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 67,4 fm og þar af sérgeymsla (7,1 fm) á jarðhæð. Eignin er staðsett á fjölskylduvænum og vinsælum stað í Grafarvogi. Leikskólar, grunnskóli (Rimaskóli) og framhaldsskóli (Borgarholtsskóli), verslun og þjónusta í Spönginni sem og íþróttir og Grafavogslaug í göngufæri.Allar nánari upplýsingar gefa Úlfar Hrafn Pálsson lögg,fasteignasali í síma 623-8747 eða ulfar@remax.is, Kristín Halldórsdóttir lögg,fasteignasali í síma 659-8144 og Páll Guðmundsson lögg,fasteignasali 861-9300 eða pallb@remax.is
SKOÐA EIGNINA Í 3D HÉRNánari lýsing:Forstofa: Með flísum á gólfi og góðri aðkomu inn í íbúðina.
Stofa: Rúmgóð og björt með útgengi á svalir sem snýr út í garð. Innfeld halogen lýsing í lofti. Parket á gólfi.
Eldhús: Nýleg svört eldhúsinnrétting með góðum skápum og hvítum flísum milli skápa. Innbyggður örbylgjuofn, bakaraofn, gufugleypir og span helluborð. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Walk-in sturta, upphengd innrétting með vask, upphengt klósett og tengi fyrir þvottavél. Flísar í hólf og gólf.
Geymsla: Á jarðhæð er sérgeymsla.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla á jarðhæð.Skv. seljanda hafa eftirfarandi endurbætur átt sér stað í íbúðinni:-2021: Nýjar flísar í forstofu, parket á gólf og hurðar frá Ebson. Gardínur frá Álnabæ. Nýir sólbekkir.
-2021: Baðherbergi endurnýjað: Nýjar flísar, vaskur, walk-in sturta (Ebson), blöndunartæki og klósett (Ísleifur Jónsson).
-2021: Eldhús endurnýjað: Ný eldhúsinnrétting, tæki og vaskur.
-2013: Ný útidyrahurð með 3ja punkta læsingu
Skv. seljanda hafa eftirfarandi endurbætur átt sér stað í sameign:-2025: Byrjað var að mála húsið að utan. Verkinu verður lokið í sumar.
-202????: Skipt um glugga að hluta (þar sem þurfti).