Magnús Már Lúðvíksson og RE/MAX fasteignasala kynna: Fallega 3 herbergja 89,9 fm íbúð á 2. hæð með sérafnotareit / verönd í fallegu fjölbýlishúsi með lyftu að Sjónarvegi 5 í Urriðaholti í Garðabæ.
Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu / borðstofu, hjónaherbergi, herbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla.
Bókið skoðun hjá: Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is
Lýsing eignar:
Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, gott skápa- og borðpláss, innfelld uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, spanhelluborð ásamt gufugleypi.
Stofa: Parket á gólfi, opin og björt, útgengt út á viðarverönd.
Hjónaherbergi: 14,9 fm. Parket á gólfi, fataskápur útgengt út á verönd.
Herbergi: 10,6 fm. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, innrétting undir handlaug ásamt speglaskáp, sturta með hertu glerskilrúmi, upphengt salerni og handklæðaofn.
Sérafnotareitur: Sirka 55 fm afgirt timburverönd með grasi að hluta.
Þvottahús: Er innaf eldhúsi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, skolvaskur.
Geymsla: Í sameign á jarðhæð. 3,2 fm.
Hjóla- og vagnageymsla: Sameiginleg í sameign.
Um er að ræða staðsteypt 14 íbúða fjölbýli á 4 hæðum með aðalinngangi á 2 hæð Húsin eru í Urriðaholti í Garðabæ, einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru, sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri við helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra, stutt á golfvöllinn.
Fasteignamat 2026: 77.550.000
Frekari upplýsingar veitir: Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða maggi@remax.is