Magnús Már Lúðvíksson og RE/MAX fasteignasala kynna: Fallegt og sjármerandi heilsárshús á 2 hæðum við sjávarsíðuna að Hvassahraun 27, 191 Vogum
Skráning eignar: Heilsárshús byggt 2003, 80,0 fm geymsla, bátaskýli innréttað sem gestahús með arinn 28,8 fm og geymsla sem er nýtt sem vinnuskúr í dag 16,0 fm. samtals: 124,8
Efri hæðin er ekki skráð í fermetrafjölda hússins og því gólfflötur mun meiri en uppgefnir fermetrar gefa til kynna.
Húsið stendur á fallegum stað alveg við sjóinn með miklu útsýni. Mikil náttúruparadís rétt við Höfuðborgina.
Húsið er í ca. 10 mínútna akstursfjarlægð frá Hafnarfirði í átt að Reykjanesi.
Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Anddyri: Nátturuflísar á gólfi, rúmgóð.
Þvottahús: Flísar á gólfi, borðpláss, skolvaskur, hillur, gluggi.
Svefnherbergi: Flísar á gólfi, rúmgott.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, handlaug, salerni, sturta (ótengd)
Eldhús: Flísar á gólfi, SMEG ofn og gashellur, tengi fyrir uppþvottavél, góður borðkrókur.
Stofa: Flísar á gólfi, Gólfsíðir fallegir franskir gluggar með glæsilegu útsýni út á hafið.
Efri hæð: Steyptur stigi
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, frístandandi baðkar, handlaug, útdraganlegar skúffur undan súðinni.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi, hluta til undir súð, útgengt út á svalir með glæsilegu útsýni.
Geymsla: Innaf hjónaherbergi.
Gestahús: Sjarmerandi gestahús með eldhúsi og fallegum arinn.
Geymsla: Með góðum hillum og sjá smá millilofti, sérgeymsla fyrir innan.
Skráning lóðar: Sumarbústaðaland 7740,0 m², Lóðaleigusamningur var að renna út og verður endurnýjaður með nýjum eiganda.
Hiti er í öllum gólfum í aðaleigninni. Vatn kemur úr borholu og er það hitað með hitatúpu.
Sértæk skipulagsákvæði:
30 lóðir. Heimilt verður að hafa gististarfsemi í frístundahúsum á skipulagssvæðinu skv. flokki I (heimagisting) og flokki II (gististaður án veitinga) í samræmi við reglugerð nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Tegund gististaða í flokki II (gististaðir án veitinga) sé aðeins í frístundahúsum í samræmi við h-lið 4. gr. áðurnefndrar reglugerðar. Sækja þarf um rekstarleyfi til sýslumanns vegna starfsemi í flokki II, gististaður án veitinga, í samræmi við 25. gr. áðurnefndrar reglugerðar. Sú takmörkun er sett að aðeins er gert ráð fyrir að 10 lóðir á svæðinu geti á hverjum tíma verið nýttar fyrir gististarfsemi í flokki II til að koma í veg fyrir of mikla umferð og ónæði.
Frekari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson löggiltur fasteignasali í síma 699-2010 eða maggi@remax.is