NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS. Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
SMELLTU HÉR OG SJÁÐU KYNNINGU Á ÞESSARI EIGNRE/MAX ásamt GUÐNÝJU ÞORSTEINS löggiltum fasteignasala kynnir í einkasölu: Falleg og töluvert endurnýjaða íbúð á jarðhæð með útgangi út á sér sólpall í Kríuási 17ba í Áslandi í Hafnarfirði. Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 76,9fm.
Eignin samanstendur af: Forstofu, herbergi, geymslu (nýtt sem herbergi (gluggalaust)) rúmgóðu baðherbergi, þvottahúsi, eldhúsi og stofu sem eru í samliggjandi flæðandi rými með útgangi út á skjólsælan sólpall.
Húsfélagsgjöld eru 10.752kr.á mánuði.
Nánari lýsing:Forstofa: Er með tvöföldum fataskáp. Harðparket á gólfi.
Herbergi: Er með fjórföldum fataskápum sem ná upp í loft ásamt upphengdum fjórföldum sápum á vegg sem fylgir kaupunum. Harðparket á gólfi.
Geymsla/herbergi: Er í dag nýtt sem herbergi (gluggalaust). Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Er með glugga með opnanlegu fagi, flísalagðri þreplausri sturtu ásamt gleri, 2 vöskum með skúffum undir, handklæðaofni, skáp ásamt upphengdu salerni. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Er með innréttingu ásamt skolvaski. Þvottavél og þurrkari fylgja kaupunum. Flísar á gólfi.
Eldhús: Er með góðu skúffu og skápa plássi ásamt borðkróki, opið er inn í stofu. Innbyggð uppþvottavél fylgir. Harðparket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Er björt og rúmgóð með útgangi út á sólpall. Á sjónvarpsvegg í stofu og borðstofu eru upphengdir skápar sem fylgja kaupunum.
Sólpallur: Er 16fm að stærð og snýr til austurs.
Philips Hue lýsing er í íbúðinni og fylgir kaupunum.
Viðhald á íbúð:2022 - Harðparket endurnýjað
2022 - Inni hurðar í íbúð endurnýjaðar
2022 - Baðherbergi endurnýjað
2022 - Eldhúsinnrétting máluð ásamt fataskápum
2025 - Sólpallur byggður
Viðhald á húsi:2025 - Gert við leka á gafli hússins
Góð staðsetning í þessu vinsæla hverfi þar sem stutt er m.a. í grunn- og leikskóla og falleg útivistarsvæði.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðný Þorsteins löggiltur fasteigna- og skipasali í síma 771-5211 eða á netfangið gudnyth@remax.is.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.