RE/MAX Ísland logo
Skráð 26. sept. 2025
Söluyfirlit

Hringhamar 17, 401

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
58.2 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
59.500.000 kr.
Fermetraverð
1.022.337 kr./m2
Fasteignamat
35.850.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðrún Þórhalla Helgadóttir
Guðrún Þórhalla Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2024
Lyfta
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2529245
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
5 - Tilbúin til innréttingar
Guðrún Þórhalla og Guðmundur Þór Júlíusson löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna:
Hringhamar 17 í Hamranesinu, Hafnarfirði. Glæsilegar nýjar íbúðir í fallegu og sérlega vönduðu fjölbýlishúsi sem byggt er af traustum verkataka Mótx.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna. Allar íbúðir eru útbúnar með sérstöku loftræstiskerfi. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi.
Hringhamar.is - Heimasíða verkefnisins.
Íbúð 401: 58,2 fm 2ja herbergja íbúð á 4. hæð. Íbúðin er 54,4 fm ásamt 3,8 fm geymslu.
Næg bílastæði og stutt í fallega náttúru og gönguleiðir. Stutt í leik og grunnskóla sem og frábæru íþróttasvæði á Ásvöllum. Afhending íbúðar er í nóvember 2025.
Bókið skoðun hjá Guðrúnu í síma 820-0490 eða með tölvupósti á netfangið gudrun@remax.is eða á Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is 

Frekari upplýsingar um eignirnar:
Gólf íbúða eru fleytt og tilbúin fyrir endanlegt gólfefni, nema í baðherbergi og í þvottahúsi en þar eru flísar á gólfum. Einnig eru flísar á veggjum baðherbergja, flísar eru frá Parka. Fataskápar í herbergjum og forstofu eru af vandaðri gerð frá Axis. Borðplötur eru í eldhúsi, baði og þvottahúsi þar sem við á og eru frá Axis.


Eldhúsinnrétting er sérsmíðuð af vandaðri gerð frá Axis ásamt vaski og Grohe blöndunartækjum frá Byko. Helluborð og blástursofn eru af gerðinni AEG frá Ormsson (sjá nánar á www.ormsson.is) Gufugleypir í eldhúsi er einnig frá Ormsson.
Baðherbergi: Baðinnrétting kemur frá Axis. Hreinlætistæki og handklæðaofn eru frá Byko. Salernið er upphengt og innbyggt. Hitastýrð blöndunartæki verða við sturtu. Gólf eru flísalögð og veggir að hluta upp í loft
Loftræsting: Sérstakt loftræstikerfi er fyrir hverja íbúð. Kerfið hefur loftskipti í íbúðinni með því að taka loft að utan og dæla því inn í vistarverurnar, herbergi og stofu, og soga lofti út úr baði, þvottahúsi og eldhúsi. Kerfið er með varmaendurvinnslu og nýtir við bestu aðstæður um 80% af varmanum. Kerfið er með loftsíum og er allt loft sem kemur inn síað. Ekki á að vera þörf á að opna glugga í íbúðinni til loftunnar.
Frágangur sameignar: Anddyri/stigahús er lokað og er það flísalagt á aðkomuhæð með uppsettum póstkössum. Stigar og stigapallar eru teppalagðir, handrið eru á stigagöngum. Allar útidyrahurðir frágengnar og er rafmagnsopnun á aðalinngöngum. Sameign er upphituð með ofnakerfi. Raflagnir í sameign eru fullbúnar með ljósum, sbr. teikningar. Loftræstilagnir eru lagðar skv. teikningu.

Sameign: Í bílgeymslu er lagt grunnkerfi fyrir bílhleðslu. Eigendur stæða í bílgeymslu geta sett upp eigin hleðslustöð og tengt inn á grunnkerfi bílgeymslu

Skólar og leikskólar eru í nágrenni og eru öruggar göngu- og hjólaleiðir að þeim. Einnig er fyrirhugað að nýr leikskóli rísi í næsta nágrenni.
Hverfið er í nálægð við náttúru og er staðsetningin einstök með tilliti til útivistar. Í næsta nágrenni er Ástjörn, Hvaleyrarvatn og ein vinsælasta gönguleiðin í Hafnarfirði, upp á Helgafell.

MótX ehf. er byggingaraðili verkefnisins og eigandi. MótX ehf. er alhliða byggingafélag og var stofnað árið 2005 og hefur starfað óslitið síðan. MótX ehf. hefur getið sér gott orð sem framleiðandi íbúðar- og iðnaðarhúsnæðis á þessum tíma. Félagið hefur fengið viðurkenningar, bæði fyrir hönnun bygginga og frágang lóða á nýbyggingasvæði.

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðrún Þórhalla Helgadóttir löggiltur fasteignasali/viðskiptafræðingur í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is
Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða á netfangið gj@remax.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Hringhamar 17, 504
221 Hafnarfjörður
57.9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1035 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hringhamar 17, 501
221 Hafnarfjörður
58 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1033 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hringhamar 17,404
221 Hafnarfjörður
58.1 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1024 þ.kr./m2
59.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hringhamar 17, 304
221 Hafnarfjörður
58.2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
1012 þ.kr./m2
58.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin