RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali, kynna rúmgott og vel skipulagt raðhús við Hraunbæ 7 í Reykjavík. Eignin er samtals 165,3 fm, þar af er 22 fm bílskúr. Húsið býður upp á fjögur svefnherbergi, björt og rúmgóð alrými og einstaklega skemmtilega tengingu við skjólgóðan og sólríkan pall með heitum potti.*** Hér er hægt að kíkja í 3D-heimsókn ***Upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 820-0490 eða á netfanginu gudrun@remax.isFrekari upplýsingar um eignina:Komið er
inn í forstofu, sem leiðir inn í bjart og opið alrými hússins.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með stórum gluggum sem hleypa góðri dagsbirtu inn. Rýmin tengjast vel saman og mynda fallega og opna heild.
Úr stofunni er gott útsýni yfir pallinn og garðinn og skemmtileg tenging er á milli inni- og útirýmis.
Eldhúsið er fallegt bjart, vel skipulagt
með góðu skápa og vinnuplássi. Ljós innrétting í bland við dekkri efri skápa og
granít borðplötur gefa eldhúsinu fallegt yfirbragð.
Inn af eldhúsi
er rúmgott þvottahús og geymsla með útgengi út að framan.
Í eigninni eru
fjögur svefnherbergi, sem gerir eignina sérstaklega hentuga fyrir fjölskyldufólk. Léttur veggur er á milli tveggja herbergjanna og því býður skipulagið upp á ákveðinn sveigjanleika eftir þörfum.
Baðherbergi er með upphengdu salerni og sturtu auk innréttingar. Þetta rými var tekið í gegn fyrir um 10 árum. Að auki er
gestasalerni inn af forstofu.
Geymsla fylgir eigninni, þar er lagnagrindin sem hefur verið endurnýjuð að hluta. Þar er einnig stýring á heita pottinum.
Útiaðstaðan: Við húsið er
stór, skjólgóður og sólríkur, lokaður pallur með heitum potti. Hér er einstaklega góð aðstaða til útiveru. Fallegur gróður umlykur svæðið og gefur því hlýlegt yfirbragð.
Eigninni fylgir 22 fm bílskúr með nýlegri bílskúrshurð, sem nýtist vel bæði fyrir bifreið og sem aukið geymslu- eða vinnurými.
***Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni: Fyrir um 10 árum voru meðal annars gólfefni endurnýjuð, ný eldhúsinnrétting sett upp og baðherbergi tekið í gegn. Rafmagn hefur verið endurnýjað og neysluvatnslagnir endurnýjaðar. Í kringum 2016 voru neysluvatnslagnir myndaðar og voru í lagi.***Viðhald: Á næstu árum má gera ráð fyrir að þörf sé á að mála þak, ásamt endurnýjun á þakkanti.
Hraunbær er rótgróið og fjölskylduvænt hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, íþróttastarf og aðra helstu þjónustu. Þá eru fjölbreytt útivistarsvæði og góðar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni.Allar frekari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 820-0490 eða á netfanginu gudrun@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.