Remax kynnir í einkasölu: Falleg 113,4 fm endaíbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er 3ja til 4ra herbergja, en í dag eru tvö svefnherbergi í íbúðinni en auðvelt að bæta því þriðja við.
Tvö samliggjandi bílastæði i bílageymslu fylgja. Gengið inn í íbúðina af opnum svalagangi.
Smelltu hér til að fá sölyufirlit strax!
Pantaðu skoðun hjá Hauki í s: 699-2900 eða í tölvupósti á haukur@remax.isForstofa er flísalögð með fataskáp.
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og steini í borðum. Innfelldur vaskur og helluborð er í innréttingu og loft niðurtekin með halógenlýsingu. Eldhúsið er opið að stofu/borðstofu.
Stofa/borðstofa eru í samliggjandi rými með olíubornu eikarparketi á gólfum. Útgengt á um 18 ferm. suðursvalir með glerlokun.
Svefnherbergin tvö er með eikarparketi á gólfum og fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með steyptri sturtu, fallegri hvítri innréttingu og handklæðaofni.
Þvottahús er rúmgott með flísalagt gólf og stórri innréttingu.
Sér geymsla 10,2 ferm. í sameign á sömu hæð og íbúðin er.
Í bílageymslu eru tvö samliggjandi bílastæði merkt B08 og B09. Þvottaaðstaða er í bílakjallara. Hægt að tengja hleðslustöðvar í bílageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Haukur Hauksson lögg. fasteignasali hjá RE/MAX í s: 699-2900 eða á haukur@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk