Berglind Hólm lgfs og Þorsteinn lgfs. með RE/MAX kynna: Nýtt í sölu 10 stórglæsilegar íbúðir með sjávarútsýni á efstu hæðum í Bakkabraut 9-23.
íbúð númer 403 er á efstu hæð í Bakkabraut 9 sem liggur samhliða sjávarsíðunni til suðurs hjá smábátahöfninni við Kársnes. Íbúðin er einstök með gólfsíðum gluggum, mikilli lofthæð, 3 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum, stóru alrými sem rúmar setustofu, borðstofu og eldhús, búr, þvottaherbergi, fataherbergi og forstofu. Íbúðarhlutin er skráður 190,4 m2 en að auki fylgir henni 47,8 m2 bílskúr (frístundaskúr) í bílakjallara og 2 stæði í bílageymslu.
Íbúðin er auglýst og selst tilbúin til innréttinga. Hægt er að fá íbúðina fullbúna, nánari lýsing og verð er neðar í lýsingu.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 / email: berglind@remax.is og Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700 / email: steini@remax.isAuglýst verð miðast við afhendingu íbúðarinnar tilbúinnar til innréttinga, sem gefur kaupanda kost á að haga hönnun og efnisvali eftir eigin stíl og óskum. Einnig er í boði að fá íbúðina afhenta fullkláraða án megingólfefna á 350.000.000 kr. Við þau skil geta kaupendur valið á milli tveggja hönnunarþema, Yls og Steins. Nánari upplýsingar um afhendingarástand og endanleg skil fást hjá söluaðila.Við Vesturbakka rísa 118 vandaðar íbúðir, þar sem fágaður arkitektúr, tímalaus hönnun og nútímaþægindi fara saman. Íbúðirnar eru fjölbreyttar og einkennast af vel útfærðu skipulagi og vönduðu efnisvali.
Vesturbakki stendur við Kársneshöfn, þar sem framtíðarsýn Kópavogsbæjar fyrir svæðið er að taka á sig mynd. Í skipulagi er meðal annars gert ráð fyrir veitingastað og aðstöðu til sjósunds, sem munu stuðla að lifandi og aðlaðandi hafnarsvæði.
Sameiginleg aðstaða til afþreyingar og vellíðunar verður á 1. hæð við Vesturbakka 21b og stendur íbúum hússins til boða. Þar verður vönduð líkamsræktaraðstaða, sauna og útisvæði með heitum og köldum potti. Jafnframt verður þar golfhermir og aðstaða til pílukasts.
Í bílakjallara verða 103 sérmerkt bílastæði og á lóð hússins verða 58 bílastæði til viðbótar.
Við hönnun bygginganna er lögð áhersla á þægindi og góða innivist, meðal annars með vönduðu byggingarefnavali. Allar íbúðir verða með gólfhita og sérstöku loftskiptikerfi, sem stuðlar að góðum loftgæðum.
Við fullbúin skil verða íbúðirnar útfærðar samkvæmt hönnunarþemunum Yl eða Steini, með innréttingum frá Parka eða Voke III og heimilistækjum frá Siemens. Helluborð verður með innbyggðri viftu og möguleika á þráðlausri fjarstýringu. Útfærsla eldhústækja verður mismunandi eftir íbúðum, en þar verða meðal annars sambyggðir baksturs- og örbylgjuofnar, frystar og vínkælar.
Í íbúðunum verður einnig free@home hússtjórnunarkerfi, sem gerir íbúum kleift að stýra meðal annars hitastigi, lýsingu og gardínum. Tæknimaður kemur í hverja íbúð til að stilla kerfið og leiðbeina íbúum um notkun þess.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 / email: berglind@remax.is og Þorsteinn Gíslason lögg.fasteignasali í síma 694-4700 / email: steini@remax.is