Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Vel skipulagt 225,3 fm. raðhús á pöllum við Keldugötu 6, 210 Garðabæ. Vandað hús með fjórum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, þar af er annað þeirra inn af hjónasvítu. Hátt til lofts, gólfhiti loftskiptikerfi og svalir til suðurs með útsýni að Urriðarvatni og víðar.
Húsið skilast fullbúið að innan sem utan, með frágenginni lóð, vönduðum innréttingum, tækjum og gólfefnum í mjög góðum gæðaflokki. Innréttingar í eldhúsi, baðherbergjum, fataskápum og þvottahúsi sem og gólfefni og flísar eru frá MOOD INTERIORS, vandaðar ítalskar vörur frá Scavolini – Regola. Miele-tæki frá Eyrvík, innbyggð eldhúsvifta í borði, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, ofn og örbylgjuofn.
Innra skipulag: Anddyri, stofa/borðstofa, eldhús, fimm svefnherbergi, baðherbergi og annað baðherbergi innaf hjónaherbergi, sér þvottahús og innbyggður bílskúr.
Samtals stærð er 225,3 fm, þar af 195,3 fm íbúðarrými og 30,0 fm innbyggður bílskúr. Auk þess er um ca. 14 fermetra rými við hlið bílskúrs, sem ekki telst með í fermetratölunni. Innangengt er úr bílskúr, gegnum þetta rými, upp í íbúðarrýmið. (Heildarstærð hússins er því um 239,3 fermetrar að meðtöldu óskráða rýminu)
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isSmelltu á linkinn til að skoða raðhúsið í 3DNánari lýsing: Góð aðkoma, hellulögð stæði við bílskúr. Forstofa er með flísum á gólfi, inn af forstofu er sér rými fyrir yfirfhafnir, fatahengi og kommóður og gólfhitakista. Inn af forstofu mjög rúmgott svefnherbergi með fataskápum og parket á gólfi, inn af herberginu er sér salerni með flísum á gólfi og á veggjum. Innrétting með handlaug og skúffu, speglaskápur þar fyrir ofan og upphengt salerni þar við hlið. Frá forstofu er steyptur stigi milli hæða/palla með glerhandrið ( val er um hvort stigi verði teppalagður eða sett á hann sama parket og er í húsinu) Á stignaum niður á neðri pall eru flísar bæði á stiga og á gólfi, þar er eitt rúmgott svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi, sér þvottahús með flísum á gólfi, handlaug með skáp þar fyrir ofan. Þar við hlið er sér baðherbergi með flísum á gólfi og á veggjum, innbyggð blöndunartæki og svalaglerþil. Handklæðaofn og innrétting með handlaug og skúffum, speglaskápur þar fyrir ofan og upphengt salerni þar við hlið. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu. Frá ganginum á neðsta palli er hægt er að opna og gera aðgengt inn í bílskúrinn frá ganginum inn í gegnum óskráða rýmið. Bílskúrinn er mjög rúmgóður,30,0 fm. Á pallinum fyrir ofan forstofuna þar er vel skipulagt og vandað eldhús og borðstofa með gólfsíðum gluggum og parket á gólfi. Frábært skápa-, vinnu- og borðpláss. Miele-tæki frá Eyrvík, innbyggð eldhúsvifta í borði, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur með frystir. Ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð. Á pallinum þar fyrir ofan er mjög rúmgóð og flott stofa. Mjög björt stofa með hátt til lofts, gólfsíðum gluggum í tvær áttir og útgengi út um rennihurð út á flísalagðar svalir sem snúa vel á móti sól í suður og eru með glæsilegt útsýni m.a að Urriðavatni, Hafnarfirði og til sjávar. Frá stofu er gengið upp á efsta pall, þar er rúmgóð hjónasvita með parket á gólfi og sér baðherbergi, flísalagt gólf og meðfram sturtu og innréttingu. Innbyggð tæki í sturtu, gler þil, uphengt salerni, handklæðaofn og innrétting með handlaug og skúffum. Speglaskápur þar fyrir ofan. Í hvorum enda fyrir sig er svo kommóður og fatahengi. Herbergið þar við hlið er með parket á gólfi og fataskápum meðfram allri hliðinni, er hugsað sem fataherbergi með hjónasvítunni ( auðvelt væri að nýta það sem barnaherbergi, henti það betur)
Hellulagt bílaplan með hitalögnum í stígum og frágengin lóð. Gluggar eru ál/tré. Þak steypt að hluta og að hluta úr timbursperrum. Tvívirkt loftræstikerfi innsteypt í loftaplötur, inn og útloftun.
Urriðaholt er rólegt og fjölskylduvænt hverfi í Garðabæ þar sem náttúra og mannlíf mætast. Göngufæri við Urriðaskóla, útivistarsvæði og náttúruperlur eins og Urriðavatn og Heiðmörk.
Nánari upplýsingar veita:Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali, í síma 661-6056 / gulli@remax.is
Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali, í síma 862-2001 / gunnar@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500
af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnna. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-