RE/MAX Ísland logo
Skráð 30. apríl 2026
Söluyfirlit

Ásvallagata 55

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
57 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
47.700.000 kr.
Brunabótamat
24.650.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Dagbjartur Willardsson
Dagbjartur Willardsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1935
Þvottahús
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2002507
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað.
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað.
Gluggar / Gler
Ekki vitað.
Þak
Ekki vitað.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Bakstursofn virkar nema að hluta til. Slær út við ákveðið hitastig. 
 Dagbjartur Willardsson  löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna, Ásvallagötu 55, íbúð 0201, fnr. 200-2507

Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 57 fm. Íbúðarhlutinn er skráður 44,1 fm og svo tvær geymslur i kjallara sem eru skráðar 4,1 og 8,8 fm. Skráð byggingarár hússins er 1935 Húsið er fjórar hæðir og kjallari og er íbúðin á efri hæð hússins.  Sjá má skipulag íbúðar á teikningu sem er vistuð þar sem ljósmyndir eru af eigninni og einnig er skipulag í kjallara vistað þar. Einungis fjórar íbúðir eru í stigaganginum (tvær á hvorri hæð). Frábær fyrstu kaup. Húsið er steinsteypt og mynda húsin hring utan um skemmtilegan skjólgóðan gróinn garð með leiktækjum, bekkjum, borðum og matjurtabeðum. Frábær staðsetning þar sem göngufæri er í sundlaug, háskólasvæðið, verslanir, kaffihús og leik- og grunnskóla. Einnig er afar stutt í útivistarsvæði við sjávarsíðuna og í miðbæinn þar sem allt er til alls. Reykjavíkurborg sér um að halda garðinum í portinu við og er garðurinn öllum opinn á daginn, en á kvöldin er hliði í undirgöngum læst og garðurinn er þá eingöngu fyrir íbúa í húsinu. Húsalengjan er teiknuð af Guðjóni Samúelssyni arkitekt og eru sögufrægir verkamannabústaðir. Húsalengjan myndar hring utan um þennan garð og stendur við Ásvallagötu, Bræðraborgarstíg, Hringbraut og Hofsvallagötu.

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR -  3D


Nánari lýsing:

Aðkoma: Snyrtileg sameign sem liggur upp að íbúðinni á 2. hæð. 

Stofa: Er björt með parketi á gólfi. Gluggi snýr inn í garðinn. 

Svefnherbergi: Parket á gólfi. Rúmgóður fataskápur. 

Baðherbergi: Er allt nýlega endurnýjað. flísalagt í hólf og gólf, góð vaskinnrétting, sturta, upphengt salerni og stór handklæðaofn. Gluggi er í rýminu. 

Geymslur:  Tvær geymslur fylgja íbúðinni og eru í kjallara. Sú stærri er skráð 8,8 fm og minni geymslan er 4,1 fm. 

Ásvallagata 55 er virkilega falleg íbúð í húsi sem hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Öflugt húsfélag er starfandi í húsinu. Tilvalin eign fyrir fyrstu kaupendur. 


Samantekt á framkvæmdum í gegnum árin frá húsfélaginu:
2000-2001                 Var heildarendurnýjun á þaki.  Skipt var um járn á þaki og það málað, skipt um pappa, rennur og niðurfallsrör og einangrað með steinull.
2000-2001                 Endurnýjun loftneta og loftnetslagna, jarðbinding.
2001-2002                 Endurnýjun hluta kjallarahurða og glugga. Endurnýjun glugga í íbúðum og sameignum.Endurnýjun og viðhald glugga í íbúðum og sameignum.
2006                           Málun glugga og hurða, viðhald og endurnýjun glugga.
2007                           Viðhald og endurnýjun steyptra kjallaraglugga 
2008                           Viðhald glugga og útidyrahurða.
2009                           Viðhald glugga og útidyrahurða.
2010                           Málun þaka, niðurfallsröra og þakrenna
2011                           Málun botnstykkja eða heilmálun glugga eftir atvikum og kjallarahurða, lagning snjóbræðslu. Viðhald og endurnýjun hluta sameiginlegar klóakslagnar.
2011                           Hannaðar betrumbætur, með tilliti til eldvarna og hljóðeinangrunar á upprunalegu hurðirnar sem skilja að íbúðir og stigaganga.
2012                           Endurgerð fyrrum búðarglugga á Bræðraborgarstíg og upprunalegra útidyrahurða.
2012                           Endurreisn garðveggja við Hringbraut.
2013                           Hönnun garðhliða.
2014                           Uppsetning húsnúmera og götuskilta, uppsetning útiljósa, unnið að úttekt á húsunum.
2015                           Vinnu við úttekt húsanna haldið áfram, smíði og uppsetning garðhliða, viðhald glugga.
2016                           Áframhaldandi viðhald glugga og hurða, viðhald og endurnýjun á þakrennum og niðurfallsrörum.
2017                           Áframhaldandi viðhald og málun glugga og hurða, viðhald og endurnýjun á þakrennum og niðurfallsrörum.
2018-2019                 Áframhaldandi viðhald og málun glugga og hurða, viðhald og endurnýjun á þakrennum og niðurfallsrörum.
2019-2020                 Áframhaldandi viðhald og málun glugga og hurða, viðhald og endurnýjun á þakrennum og niðurfallsrörum. Viðhald á styttunni af Héðni Valdimarssyni. Endurnýjun á trjágróðri í görðum.
2021                           Myndun klóakslagna, viðhald glugga, viðhald, endurnýjun og málun á þakrennum og niðurfallsrörum, loftnet fjarlægð af skorsteinum. Slegið upp fyrir nýjum stöpli undir styttuna af Héðni Valdimarssyni.
2022                           Viðhald glugga, viðhald á þakrennum, haldið áfram plöntun og endurnýjun á trjám í garða.
2023                           Málun á þökum, viðhald og blettun á niðurfallsrörum og þakrennum, viðgerðir á kjallaratröppum, stöpull undir styttuna af Héðni Valdimarssyni flísalagður og styttunni komið fyrir.
2024                           Viðhald á gluggum, þakrennum og þakniðurföllum, lítilsháttar múrviðgerðir, plöntun trjáa.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s: 861-7507 eða á daddi@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Klapparstígur 7
101 Reykjavík
77.2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
1,061 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Mýrargata 35
101 Reykjavík
73.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
1,425 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Barónsstígur 6
101 Reykjavík
82.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
211
967 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Nýlendugata 20
101 Reykjavík
77.6 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
312
772 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin