RE/MAX Ísland logo
Skráð 30. sept. 2026
Söluyfirlit

Bæjargil 5

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
199.4 m2
6 Herb.
2 Baðherb.
Verð
183.900.000 kr.
Fermetraverð
922.267 kr./m2
Fasteignamat
144.200.000 kr.
Brunabótamat
99.450.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Pétur Ásgeirsson
Pétur Ásgeirsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1986
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2069618
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
upprunalegt
Raflagnir
Sjá lýsingu
Frárennslislagnir
upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
ja
Upphitun
Sjá lýsingu
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
8 - Í notkun
Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Glæsilegt og vel skipulagt mikið endurnýjað fjölskylduhús, á frábærum og skjólsælum stað í Garðabæ.

Í eigninni eru fjögur mjög góð svefnherbergi, stór stofa + borðstofa, sólstofa, tvö salerni (aðalbaðherbergi og gestasalerni, stórt eldhús, þvottahús, 32 fm bílskúr og útiskúr. Nýlegt parket er á allri eigninni og bæði baðherbergi hússins voru endurnýjuð nýlega. Góð skipting er á hæðunum þar sem öll svefnherbergin eru á efri hæð hússins ásamt aðalbaðherberginu.

• Glæsilegur og vel hannaður garður með stórum palli, heitum og köldum potti ásamt útisturtu.
• Sérútbúin líkamsræktaraðstaða í hluta bílskúrs.
• Eignin hefur fengið umfangsmiklar og vandaðar endurbætur á undanförnum árum.
• Frábær staðsetning með stutt í alla helstu þjónustu.
• Fjögur rúmgóð svefnherbergi.
• Bjart og rúmgott alrými.
• Rúmgott bílastæði.
• Stór, um 15 m² útigeymsla.


Hér getur þú gengið í gegnum eignina í 3D 

Endurbætur og framkvæmdir síðustu ára
Núverandi eigendur hafa ráðist í umfangsmiklar endurbætur á eigninni undanfarin ár, bæði að innan og utan.

2021
• Þak og gluggar máluð.
• Þakrennur endurnýjaðar.

2022
• Lóð hellulögð og snjóbræðslukerfi lagt.
• Grindverk smíðað umhverfis lóðina.
• Stór pallur smíðaður með heitum og köldum potti ásamt útisturtu.
• Sérútbúið grillstæði smíðað.
• Trampólín grafið niður í lóð.
• Um 15 m² geymsluskúr reistur.
• Nýjar álþakrennur settar upp.
• Þvottahús endurnýjað með sérsmíðuðum innréttingum.
• Bílskúrshurð endurnýjuð.

2023
• Hluti bílskúrs innréttaður sem líkamsræktaraðstaða.
• Bæði baðherbergi eignarinnar, á efri og neðri hæð, endurnýjuð. Sérsmíðaðar innréttingar, speglar og steinvaskar.
• Steypt plan meðfram garðskála.
• Rafmagnstafla endurnýjuð af HTH.
• Nýtt loft sett í garðskála.
• Hleðslustöð fyrir rafbíl sett upp af HTH.

2024
• Skipt um gler í glerskyggni við eldhús.
• Fræst fyrir gólfhita á allri neðri hæð, framkvæmd af Baðkob.

2025
• Eldhús og búr endurnýjuð að fullu með sérsmíðuðum innréttingum frá Hansen innréttingasmið og steini frá Steinprýði.
• Sérsmíðaðir fataskápar settir upp í svefnherbergi.

Nánari lýsing:
Neðri hæð skiptist í: forstofu, gestabaðherbergi, stofu, borðstofu, sólstofu, þvottahús, eldhús og búr. 
Efri hæð skiptist: 4 rúmgóð svefnherbergi og aðalbaðherbergi. Herbergin eru að hluta til undir súð og því gólfflötur þó nokkuð stærri en skráðir fermetrar. 

Jarðhæð:
Forstofa og hol:
 Forstofan er björt með  nýlegum hvítum fataskáp og fallegu ljósu teppi á gólfi.
Stofa + borðstofa + sólstofa: Fallegt parket er á gólfum í stofurýminu. Stofurnar eru sérlega rúmgóðar og hægt að raða þeim upp á ýmsa vegu. útgengi er frá sólstofunni út á lóðina vestanmegin við húsið. 
Gestasalerni: Gestasalerni er nýlega endurnýjað. Falleg dökk innrétting er undir hvítum ofanáliggjandi vaski. Stór spegill og upphengt salerni
Eldhús: Parket á gólfi og er mjög rúmgott. Glæsileg Innréttingin með mjög stórri eyju. Mikið skápa og borð pláss,steinn á borðum.
Þvottaherbergi: Mjög rúmgott þvottaherbergi með innréttingu, upphengdum skáp, vinnuborð með vaski, glugga og fatahengi. Flísar eru á gólfi og útgengt út í garð.
Hvítur hringstigi sem er teppalagður er á milli hæða og þar er stór gluggi sem hleypir skemmtilegri birtu inn í miðju hússins.
Efri hæð:
Baðherbergi:
 Aðal-baðherbergið er á efri hæð hússins og er nýlega endurnýjað. Fallegar ljósar flísar eru á gólfi og hluta af veggjum, dökk falleg innrétting með stórum ljósum vaski. Salernið er upphengt og Walk in sturta.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og er rúmgott.
Barnaherbergi 1: Parket á gólfi og með fataskáp, útgengt út á svalir. Notað í dag sem skrifstofa. 
Barnaherbergi 2: Parket á gólfi og með fataskáp.
Barnaherbergi 3: Parket á gólfi og með fataskáp. Notað sem fataherbergi í dag. 
Að hluta til eru herbergin undir súð og gólfflötur því stærri en skráðir fermetrar.
Bílskúr: Er 32 fm og er búið að búa til aðstöðu fyrir líkamsrækt að hluta.  Stórt bílastæði fyrir framan og búið að setja snjóbræðslu.
Útigeymsla: Er sirka 15 fm og er hún á bakvið bílskúr.
Garðurinn er einkar glæsilegur og er hann hellulagður og að hluta. Stór pallur með heitum og köldum potti, úti sturtu og glæsilegri grill aðstöðu. 

Niðurlag: Þetta er gott fjölskylduhús á frábærum stað í Garðabænum þar sem stutt er í leik-, grunn- og framhaldsskóla, íþróttahúsið Mýrina og aðra þjónustu. Friðsælt og rótgróið hverfi á einum besta stað í Garðabæ. Í göngufjarlægð frá eigninni er í byggingu stórt íþróttamannvirki, Vetrarmýrin, fyrir allar helstu íþróttagreinar Stjörnunar.

Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson  löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Byggt 1990
32 m2
Fasteignanúmer
2069618
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.700.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Hörpulundur 7
210 Garðabær
199 m2
Einbýlishús á einni hæð
614
954 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Langafit 24
210 Garðabær
190,6 m2
Einbýlishús á einni hæð
723
889 þ.kr./m2
169.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hraunás 3
210 Garðabær
213,8 m2
Einbýlishús á pöllum
613
865 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Hellagata 14
210 Garðabær
240,4 m2
Raðhús á tveimur hæðum
634
811 þ.kr./m2
195.000.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin