RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynna fallega og vel skipulagða 4ja herbergja íbúð, 117, 5 fm. á jarðhæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi við Hólmasund 14 í Reykjavík. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu, borðstofu og eldhús sem er í opnu rými, þvottarými, geymslu og forstofu. Eignin er vel staðsett með skjólgóðan og fallegan pall. Fjölskylduvæn eign í grónu hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, sundlaug og fallegt útivistarsvæði í Laugardalnum. Falleg eign á vinsælum stað við Laugardalinn. Eign sem hægt er að mæla með.
Hér getur þú kíkt í heimsókn og skoðað eignina í 3D- umhverfi.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490, gudrun@remax.is.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: rúmgóð og björt forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofa og borðstofa: rúmgott og fallegt rými. Útgengt er úr stofu út á góðan pall sem snýr í suð/vestur.
Eldhús: opið eldhús sem er með ágætri innréttingu, flísalagt á milli efri og neðri skápa.
Hjónaherbergi: Rúmgott með rúmgóðum fataskápum, útgengt er út á pall.
Herbergi I: Bjart og gott herbergi með fataskápum.
Herbergi II: Rúmgott og bjart með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt að mestu, með baðkari og sturtu, góð baðinnréting.
Þvottarými: Er með flísum á gólfi.
Geymsla: Er innan íbúðar með parketi á gólfi, væri hægt að nýta sem vinnurými.
Gólfefni eru harðparket og flísar á votrýmum.Sameiginlegur inntaksklefi/hjólageymsla er með íbúð efri hæð. Gengið er inn í þetta rými við hliðina á innganginum. Einnig er sameiginleg geymsla fyrir td. dekk og slíkt sem er staðsett við Sæbrautina.
Þessi eign er vel staðsett og býr yfir góðu skipulagi. Eignin er líka vel staðsett gagnvart stofnbraut og góðum almenningssamgöngum.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir í síma 820-0490, gudrun@remax.is.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.