Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna bjarta og rúmgóða tveggja herbergja íbúð á fyrstu hæð við Friggjarbrunni 5 í Úlfarsárdal.
Aukin lofthæð er í íbúðinni eða um 2,70m. Fallegt útsýni og útgengi út á rúmgóðar L-svalir sem snúa til suðurs og vesturs.
Íbúðin er virkilega snyrtileg og smekklega innréttuð.
Gólfefni er annars vegar úr gegnheilu parketi og hins vegar úr 60x60 cm flísum.
Innréttingar, innihurðir og fataskápar eru af vandaðri gerð, ýmist hvítt eða úr láréttri bæsaðri eik sérsmíðað af Fagus.
Granít steinn er á borðplötum í eldhúsi og á baði. Gólfhiti er í íbúðinni.
Eigninni fylgir sér stæði í bílageymslu.
Lyfta er í húsinu.Frekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.isKíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða
á InstagramEignin skiptist í forstofugang, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, þvottahús, geymslu og rúmgóðu stæði í lokuðum bílakjallara, stórar svalir til suðurs og vesturs.
Birt stærð eignar er 90,4 m2 þar af er geymslan 7,2 m2 skv. skráningu Þjóðskrá Íslands. Bílastæði er 33,6 m2 og svalir 28,3 m2.
Nánari lýsing:
Forstofugangur flísar á gólfi og innbyggður fataskápur.
Hjónaherbergið er rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp.
Baðherbergið er með innbyggðri lýsingu, upphengdu salerni, baðinnréttingu undir vaski með granít borðplötu, vegghengdum skáp, Walk-in sturtu og handklæðaofni.
Eldhús er rúmgott með stórri eyju og samanstendur af bæði hvítum háglans og eikar innréttingum með miklu skáparými og granít borðplötum, siemens ofn og örbylgjuofn fylgja og uppþvottavél. Gashelluborð er á eyju með háfi yfir, hægt að sitja við eyju.
Þvottahús með hvítum innréttingum og skolvaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, þar er gólfhitastýringin
Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á góðar svalir sem snúa í suð-vesturs og nýtur sólar frá morgni til kvölds.Gólfssíðir gluggar sem gefa fallega birtu í rýmið.
Góð geymsla er í kjallara ásamt
sér stæði í lokuðum bílakjallara þar sem búið er að koma fyrir tengingu fyrir hleðslustöð.
Sameign er afar snyrtileg og rúmgóð, steinateppi er á gólfi í stigagangi.
Úlfarsárdalur: mikil nánd við náttúruna einkennir hverfið, en Úlfarsfell, Reynisvatn og Hólmsheiði eru í göngufæri, sannkölluð útvistarparadís. Dalskóli er staðsettur á fallegum stað neðst í dalnum og er samrekinn leik- og grunnskóli auk frístundaheimilis. Í dalnum er einnig félagssvæði Fram og sundlaug.