RE/MAX Ísland logo
Skráð 3. des. 2025
Söluyfirlit

Kaplaskjólsvegur 93

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
116.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.900.000 kr.
Fermetraverð
856.041 kr./m2
Fasteignamat
87.650.000 kr.
Brunabótamat
61.850.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Bjarni Blöndal
Bjarni Blöndal
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1978
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2026479
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
6
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
upprunalegar
Raflagnir
upprunalegar
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
upprunalegar
Þak
upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s:662-6163) kynnir: Sérlega falleg, mikið endurnýjuð og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á 2.hæð í lyftuhúsi í hjarta Vesturbæjarins. Íbúðin er 116,7fm og henni fylgir ca. 6 fm geymsla á fyrstu hæð sem er ekki inni í ofangreindum fermetrum. Tvennar rúmgóðar svalir í austur og vestur.

NÁNARI LÝSING:Komið inn í anddyri með nýlegum fataskápum. Salerni innaf anddyri með upphengdu wc, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er gengið inn í rúmgott nýlegt eldhús með fallegri og vandaðri innréttingu, gott vinnu- og skápapláss, eyja sem hægt er að sitja við með skápum, vönduð tæki, gluggi í vestur. Eldhúsið er opið í miðju íbúðar og er hjartað í henni. Stofan og borðstofan eru samliggjandi, mjög rúmgóðar með útgengi á sólríkar vestur svalir. Gengið er niður tvö þrep í svefnálmu. Gott sjónvarpshol. Tvö barnaherbergi. Hjónaherbergi með góðu skápaplássi með útgengi á svalir sem snúa í suð-austur. Baðherbergið er endurnýjað, rúmgott með fallegri innréttingu, speglaskápur með innfelldri lýsingu, sér rúmgóð sturta og gott baðkar. Þvottahús er á hæðinni sem einungis 3 íbúðir hafa aðgang að.
GÓLFEFNI: Fallegt parket er á öllum gólfum nema baðherbergjum þar sem eru flísar.

Framkvæmdir eigenda:
2020: Eldhús endurnýjað. Meirihluti íbúðar var heilspartlaður og hún öll máluð. Nýtt parket sett á svefnherbergi, skála, stofu og eldhús. Baðherbergi á neðri palli endurnýjað með nýjum flísum, tækjum og innréttingu. Þar sem skráð er geymsla á efri palli var gert nýtt salerni með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Barnaherbergi, sem höfðu verið sameinuð í eitt stórt herbergi skipt aftur í tvö herbergi. Skipt var um allar hurðir innandyra, þ.e. hurðir inn í svefnherbergin, salerni og baðherbergi ásamt nýrri hurð við tröppur á milli palla. Skipt um ofn í skála og lítinn ofn í hjónaherbergi
2024: Skipt um ofna í stofu.

Framkvæmdir á vegum húsfélags:
2023: Skipt um eldhúsglugga og allir gluggar yfirfarnir og skipt um kítti meðfram gluggum að utan.
2024: Sameign máluð og skipt um gólfteppi.
2025: Steypuviðgerðir á ytra byrði hússins, það verður málað 2026. Svalir verða einnig slípaðar 2026 og vatnshalli lagaður á þeim. Skipt um glugga í sumum íbúðum og sameign. Þak yfirfarið og gert við þar sem leki var á efstu hæð. Rafmagnstafla í sameign endurnýjuð.

Í sameign á efstu hæð er sauna og svæði fyrir líkamsræktaraðstöðu ásamt útsýnissvölum. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla á 1.hæð. Sameiginlegar hleðslustöðvar á bílaplani. Stór lóð með leiktækjum.

Þetta er gullfalleg eign á besta stað í Vesturbænum, göngufæri við miðborgina. Stutt í leikskóla, skóla, tónlistarskóla, Háskóla Íslands, íþróttasvæði KR, Sundlaug Vesturbæjar, Melabúðina, veitingastaði og náttúrusvæðið við Ægissíðu.
 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Sogavegur 73
108 Reykjavík
115.8 m2
Fjölbýlishús
32
828 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Dugguvogur 1 - Íbúð 504
104 Reykjavík
117 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
845 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Kleppsmýrarvegur 6 - Íbúð 410
104 Reykjavík
120.2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
839 þ.kr./m2
100.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Kleppsmýrarvegur 6 - Íbúð 310
104 Reykjavík
120.8 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
819 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin