Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Íbúð með útleigumöguleika Um er að ræða tveggja - þriggja herbergja 67,9 fm. endaíbúð á eftirsóttum stað miðsvæðis við Öldugötu 17, 101 Reykajvík með glugga á þrjá vegu á 1. hæð, með aukinni lofthæð og svalir í suður með útgengi út í sameiginlegan garð. Með íbúðinni fylgir 64,9 fm. íbúðarrými í kjallara með lægri lofthæð, sér eldhús og baðherbergi. Skráð sem tómstundarherbergi.
Samtals stærð 132,8 fm.
ÍbúðSmelltu á hlekkinn til að skoða íbúðina í þrívíddTómstundarrými í kjallara/ útleigumöguleikiSmelltu á hlekkinn til að skoða tómstundarrými í kajllara / úteligumöguleika í þrívíddBókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.isNánari lýsing: Íbúð á fyrstu hæð:Komið er inn í forstofugang með fataskáp og parketi á gólfi þaðan sem opið er inn í alrýmið. Af ganginum er gengið inn í tvö herbergi ( sem auðvelt væri að sameina í eitt stórt hjónaherbergi ) og baðherbergi. Annað herbergið er með fataskáp og glugga, en hornherbergið er með gluggum á tvo vegu. Bæði eru með parketi á gólfi. Baðherbergi er með flísum á gólfi, innréttingu, sturtu og glugga. Í alrými er björt stofa með parketi á gólfi, sér smíðuðum bókahillum og glugga til suðurs. Opið eldhús með parketi á gólfi, L-laga innréttingu, glugga og hurð út á suðursvalir. Stigi er af svölunum og niður í sameiginlegan suðurgarð. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Íbúð í kjallara: Stofa með parketi á gólfi og glugga til suðurs. Eldhús er með parketi á gólfi og innréttingu á einum vegg, gluggum á tvo vegu og borðkrók. Baðherbergi er með flísum á gólfi, flísum á veggjum, baðkari, innréttingu og glugga. Einnig er bjart herbergi með parketi á gólfi, skáp og gluggum á tvo vegu. Eignin á tvo geymsluskápa í sameign í kjallara.
Sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymsla er í kjallara. Húsið var tekið og endurnýjað með vönduðum hætti fyrir ca 22 árum síðan og býr enn vel að þeim framkvæmdum.
Skv. yfirlýsingu húsfélags er komin tími til að mála húsið og garðvegginn. Endurnýja þarf nokkra glugga á húsinu, einkum á austur- og norðurhlið hússins. Með söluyfirlitinu getur fylgt ástandsskýrsla þar sem farið var í ástandsmat á gluggum og hurðum hússins þann 17.03.2025
Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 661- 6056 / gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.