RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Vel skipulögð og mikið endurnýjuð íbúð á 2.hæð. Íbúðin er 75 m². Eignin var nýlega tekin í gegn á smekklegan hátt, með nýlegri eldhúsinnréttingu og endurnýjuðu baðherbergi. - Eldhús, Ikea 2023
- Parket og innihurðir, Birgisson 2023
- Baðherbergi, Álfaborg flísar, baðkar Byko og innréttingar Ikea 2024
- Sérmerkt bílastæði
- Byggt 2004
- AFHENDING Í BYRJUN MAÍSKOÐAÐU EIGINA Í 3D HÉR - MEÐ OG ÁN HÚSGAGNAÍbúðin er á annarri hæð með sérinngangi og skipulag hennar nýtist vel fyrir fjölskyldur.
Anddyri: Komið er inn í bjart anddyri með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum fyrir yfirhafnir og skó. Sérinngangur af svalagangi.
Gangur: Gangurinn tengir rými íbúðarinnar og er með fallegu harðparketi á gólfi sem gefur hlýlega heildarmynd.
Eldhús: Bjart og opið eldhús með nýlegri hvítri innréttingu og góðu vinnuplássi. Innbyggð uppþvottavél fylgir með. Veggflötur yfir borðplötu er með stílhreinni tréáferð sem gefur hlýlegan blæ. Opið er á milli eldhúss og stofu sem skapar opið og bjart alrými. Harðparket á gólfi.
Þvottahús: Inngangur í þvottahús er inn af eldhúsi. Þar er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með harðparketi á gólfi og miklu náttúruljósi frá stórum gluggum. Útgengi er frá stofu á suðursvalir sem snúa inn í bakgarð hússins.
Svefnherbergi I: Rúmgott herbergi með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi II: Annað svefnherbergi með harðparketi á gólfi. Gluggi hleypir inn góðu náttúruljósi.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað baðherbergi sem er flísalagt á gólfi og að hluta á veggjum með ljósum flísum. Þar er upphengt salerni, baðinnrétting með handlaug og baðkar með sturtuaðstöðu.
Utandyra og sameign
Svalir: Svalir sem snúa til suðurs, frá stofu, inn í bakgarðinn. Þær bjóða upp á gott útsýni yfir sameiginlegan garð og njóta sólar.
Geymsla: Sérgeymsla sem er 5,4 m² að stærð fylgir íbúðinni og er hún staðsett á jarðhæð í sameign hússins.
Sameiginleg aðstaða: Í sameign er hjóla- og vagnageymsla. Á lóð hússins er sérmerkt bílastæði og sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn.
Húsið og umhverfi: Hraunbær 109-109A er þriggja hæða fjölbýlishús með 22 íbúðum, byggt árið 2004. Svæðið er rólegt og fjölskylduvænt.
Ástand og endurbæturÍbúðin hefur verið endurnýjuð á síðustu árum á smekklegan hátt.
Endurbætur: Íbúðin hefur nýlega verið tekin í gegn. Eldhúsinnrétting er nýleg og baðherbergi hefur einnig verið nýlega endurnýjað.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is