RE/MAX Ísland logo
Opið hús:07. sept. kl 16:30-17:15
Skráð 4. sept. 2026
Söluyfirlit

Fífumýri 8

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
217 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
169.900.000 kr.
Fermetraverð
782.949 kr./m2
Fasteignamat
160.400.000 kr.
Brunabótamat
113.700.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1983
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2070029
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
**SKRÁNING Í OPIÐ HÚS mánudaginn 7.sept. kl.16:30**

RE/MAX, HERA BJÖRK Lgf. (herabjork@remax.is774-1477) & SALVÖR ÞÓRA Lgf. (salvor@remax.is / 844-1421) KYNNA:
Fallegt, einstaklega rúmgott og fjölskylduvænt 217 m² einbýlishús á tveimur hæðum með stórum 37 m² bílskúr og gróinni 646 m² lóð við Fífumýri 8 í Garðabæ.

Helstu kostir
  • 217 m² eign – 180 m² einbýlishús + 37 m² bílskúr
  • 5 svefnherbergi, 2 baðherbergi og rúmgóð fjölskyldurými
  • Björt og rúmgóð stofa, stórt eldhús og sjónvarpshol
  • 646 m² gróin og skjólgóð lóð með verönd
  • Róleg og eftirsótt staðsetning innst í botnlanga í Garðabæ
  • Karakterríkt fjölskylduhús með spennandi möguleika til endurnýjunar
** SMELLTU HÉR fyrir EIGNAMÖPPU / SÖLUYFIRLIT ásamt öðrum upplýsingum um eignina SAMSTUNDIS **

** SMELLTU HÉR FYRIR SKRÁNINGU Í OPIÐ HÚS mánudaginn 7.sept. kl.16:30 - skrá þarf mætingu fyrirfram ** 
Ef forföll verða biðjum við um að þau séu tilkynnt svo við getum tekið tillit til þess við skipulagningu sýningarinnar.
Berist engar skráningar fellur opna húsið niður með 24 klst. fyrirvara.


Nánar um eign
Samkvæmt fasteignaskrá er birt stærð eignarinnar 217 m², þar af er húsið sjálft 180 m² ásamt 37 m² bílskúr.  Húsið stendur innst í botnlanga á rólegum og eftirsóttum stað og býður upp á fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, stóra og bjarta stofu & borðstofu, sjónvarpshol, rúmgott eldhús og gott þvottahús. Eignin hefur einstaklega hlýlegan karakter þar sem timburklæðningar, fjöldi glugga og góð birta setja sterkan svip á húsið. Skipulagið hentar sérstaklega vel stærri fjölskyldu og býður jafnframt upp á góða möguleika til að endurnýja og móta eignina að eigin smekk.

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - MEÐ HÚSGÖGNUM
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN HÚSGAGNA


Nánari lýsing
NEÐRI HÆÐ:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskápum.
Úr forstofu er gengið inn í bjart og opið hol sem tengir saman helstu rými neðri hæðarinnar. Fallegur viðarstigi liggur þaðan upp á efri hæð.
Stofa og borðstofa mynda einstaklega rúmgott og bjart alrými með gluggum til fleiri en einnar áttar. Parket er á gólfi og timburklætt loft gefur rýminu hlýlegan karakter. Gengið er beint úr stofu út á verönd og út í gróinn garð.
Eldhús er rúmgott og bjart með miklu skápa- og vinnuplássi. Innrétting er ljós viðarinnrétting, gluggar veita góða dagsbirtu og rými er fyrir góðan borðkrók.
Á neðri hæð er jafnframt svefnherbergi, sem getur einnig nýst vel sem skrifstofa eða gestaherbergi.
Baðherbergi neðri hæðar er með sturtu, salerni og vaskinnréttingu.
Þvottahús er rúmgott, með vaski, tengingum fyrir þvottavél og þurrkara og góðu plássi fyrir hirslur og vinnuaðstöðu.

EFRI HÆÐ:
Komið er upp í stórt og opið sjónvarpshol/fjölskyldurými sem er miðpunktur efri hæðarinnar. Rýmið er bjart, með parketi á gólfi og timburklæddum veggjum og loftum sem skapa skemmtilega heild með byggingarstíl hússins.
Á hæðinni eru fjögur svefnherbergi, öll með góðri náttúrulegri birtu. Hjónaherbergi er rúmgott og með góðum fataskápum. Útgengt er á svalir frá hluta efri hæðarinnar.
Baðherbergi efri hæðar er með baðkari, salerni og vaskinnréttingu.

BÍLSKÚR & LÓÐ:
Bílskúr er 37 m², byggður árið 1986, vel breiður og býður upp á gott rými fyrir 2 bifreiðar ef vill. Möguleiki er á að breyta skipulagi og nýta bílskúr sem auka íbúð. Gluggar á bakhlið sem snúa út í garð og 2 hliðar á vesturhlið. Lofthæðin er mikil og var því sett upp milliloft sem möguleiki væri að nýta sem svefnrými og/eða geymslu og vinnuaðstöðu.
Lóðin er 646 m², gróin og falleg með trjám og runnum sem veita gott skjól og næði. Húsið stendur innst í botnlanga og aðkoma er því róleg og umhverfið barnvænt og fallegt. Hellulögð innkeyrsla er að húsinu og falleg aðskoma með gott aðgengi beint á verönd bakatil og í garðinn.

ÁSTAND & MÖGULEIKAR:
Eignin hefur verið í eigu sömu um langt skeið og ber eignin þess merki að hafa verið vel viðhaldið & vel nýtt sem fjölskylduheimili. Innréttingar og frágangur eru að hluta til frá fyrri árum og kominn tími á endurnýjun og viðhald á ákveðnum þáttum eignarinnar, m.a. baðherbergjum, gólfefnum og hluta glugga.
Og þar liggur jafnframt einn af áhugaverðustu kostum eignarinnar: grunnurinn er sterkur, rýmin stór og skipulagið gott, þannig að nýir eigendur fá tækifæri til að uppfæra húsið í sínum stíl án þess að sérstaða þess og hlýlegur karakter glatist.

Fífumýri 8 er sérstaklega áhugaverður kostur fyrir fjölskyldu sem leitar að rúmgóðu einbýlishúsi, stórum bílskúr, grónum garði og rólegri staðsetningu í Garðabæ & sér tækifærin sem felast í því að færa fallegt og karakterríkt hús inn í nýjan tíma.

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veita:
     Hera Björk, lgf. í síma 774-1477 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið herabjork@remax.is
     Salvör Þóra, lgf.í síma 844-1421 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið salvor@remax.is

     
-----------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________

Ertu í fasteignahugleiðingum? Við tökum fagnandi við öllum tegundum eigna á skrá. 
Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

Við höfum starfað við fasteignasölu samanlagt í yfir 20 ár. 
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.

Hafðu samband HÉR strax í dag og við aðstoðum þig/ykkur með glöðu geði :)

Hera Björk & Salvör Þóra, Löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX

 
Byggt 1986
37 m2
Fasteignanúmer
2070029
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
13.850.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Ásbúð 15
210 Garðabær
199.3 m2
Einbýlishús á einni hæð
614
777 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hraunás 3
210 Garðabær
213.8 m2
Einbýlishús á pöllum
613
865 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hestamýri 3A
225 Garðabær
181.4 m2
Fjölbýlishús með lyftu
422
964 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hestamýri 3A
225 Garðabær
194.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
422
796 þ.kr./m2
154.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin