Jóhann Kristinn Jóhannesson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna bjarta og vel skipulagða fjögura herbergja 152,7 fm íbúð á fyrstu hæð að Hörðalandi Rauðalæk 5, 104 Reykjavík.
Mjög áhugaverð eign á þessum vinsæla stað í Laugarnesinu. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leikskóla og grunnskóla ásamt íþróttasvæði Laugardalsins. Sérinngangur, bílskúr og garður í Lauganeshverfinu.
Við Rauðalæk 6 er til sölu bjarta, 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í fjórbýlishúsi, samtals 152,7 m² samkvæmt Þjóðskrá, þar af 35,1 m² bílskúr.
Gengið er inn um sérinngang í flísalagða forstofu og þaðan í hol og borðstofu sem tengir saman vistarverur íbúðarinnar.
Stofan er björt og hefur verið stækkuð með því að opna inn í aðliggjandi herbergi, þaðan sem útgengt er á yfirbyggðar svalir. Þeir sem kjósa fleiri svefnherbergi geta lokað aftur á milli.
Eldhúsið er rúmgott með upprunalegri elshúsinnréttingu og býður uppá fjölbreitt tækifæri.
Á herbergisgangi eru tvö svefnherbergi, þar af hjónaherbergi með fataskápum, auk baðherbergis með baðkari.
í sameign er sameiginlegt nýlega endurnýjað þvottahús og rúmgóð geymsla.
Íbúðin er að mestu í upprunalegri mynd og gefur nýjum eigendum tækifæri til að móta hana eftir sínu höfði.
Bílskúrinn er með gluggum út í garð og þar hafa verið lagðar nýjar lagnir fyrir vatn og frárennsli með hliðsjón af mögulegri breytingu í leigueiningu, að fengnum tilskildum leyfum.
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús, þar sem hver íbúð er með sín eigin tæki, ásamt sérgeymslu.
Framkvæmdir á húsi (samkvæmt upplýsingum frá eiganda):-2017 skipt var um allt frárensli frá húsinu
-2019 skipt var um glugga í öllu húsinu
-2019 Dren endurnýjað
-2020 Þak endurýjað
-2021 Auka dypra dren fyrir aftan og meðfram húsi
-2023 þak málað 2
-2025 Þvotta hús gólf flotað og sett epoxy steinn og veggir málaðir
Hafðu samband og bókaðu skoðun.
Jóhann Kristinn Jóhannesson, löggiltur fasteignasali, RE/MAX.Allar upplýsingar veitir Jóhann Kristinn Jóhannesson löggiltur fasteignasali johann@remax.is sími 846-3090.
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.