Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Glæsileg 143,7 m2 íbúð á efstu hæð með bílskúr og stæði í bílageymslu á Valsreitnum í Reykjavík. Í íbúðinni er aukin lofthæð.Í eigninni eru tvö rúmgóð svefnherbergi og tvo baðherbergi ásamt sér þvottaherbergi. Mikið útsýni er úr íbúðinni, gluggar á þrjá vegu og tvennar svalir. Eigninni fylgir 24,3 fm bílskúr og sérmerkt stæði í bílageymslu. Fálkahlíðin er mjög miðsvæðis í Reykjavík og því örstutt í alla helstu þjónust, háskólana, Landsspítalann og margt margt fleirra. Göngu færi í miðbæinn og útivistaperlu Öskjuhlíðarinnar.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsing eignar:Lyfta gengur upp frá bílakjallara upp á efstu hæð hússins, 5.hæð, þar sem íbúðin er.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum þreföldum fataskáp.
Alrými: Setustofa - borðstofa - eldhúsSetustofa + borðstofa: Stofu rýmið er samliggjandi í vinkil í opnu rými með góðum gluggum á tvo vegu og parketi á gólfum. Útgengt út á svalir úr stofunni sem snúa í vestur. Opið er yfir í eldhúsið sem er í sama rými.
Eldhús: Eldhúsið er með fallegri ljósgrárri innréttingu og innbyggðum tækjum sem fylgja íbúðinni (uppþvottavél og ísskápur). Fallegar flísar eru á gólfi. Innréttinginn er á einn vegg með efri og neðri skápum og eldunar eyju á móti sem snýr að borðstofunni.
Baðherbergi nr.1: Baðherbergið er með fallegum flísum á gólfi og á hluta af veggjum, við votrými. Góð ljósgrá innrétting er undir vaski. Rúmgóð sturta með glervegg er beint á gólf og handklæðaofn er á vegg.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið rúmgott er parketlagt með stórum skápum. Svalir eru út af hjónaherberginu með miklu útsýni.
Baðherbergi nr.2: Sér baðherbergi er innaf hjónaherberginu. Flísar á gólfi og hluta af veggjum. Góð sturta með glervegg er beint á gólf. Falleg ljósgrá innrétting er á vegg með vaski. Hanklæðaofn.
Barnaherbergi: Barnaherbergið er rúmgott með parketi á gólfi og góðum skápum
Þvottaherbergi: Þvottahús/geymsla er innan íbúðar með flísum á gólfi.
Geymsla: Geymsla er í kjallara. Geymslan er með aukinni lofthæð og góðum hillum sem fylgja.
Bílskúr er 24,3 fm.
Stæði í lokuðum bílakjallara.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Hverfið er snyrtilegt og vel skipulagt og stutt er í útivistarsvæði við Öskjuhlíð, hjólaleiðir eru um allt og Borgarlínan verður í næsta nágrenni.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is