RE/MAX Ísland logo
Skráð 21. ágúst 2026
Söluyfirlit

Kirkjuvellir 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
88.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
735.828 kr./m2
Fasteignamat
63.300.000 kr.
Brunabótamat
45.500.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðrún Þórhalla Helgadóttir
Guðrún Þórhalla Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2006
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2279186
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Sjá lýsingu
Þak
Sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2. hæð við Kirkjuvelli 5 í Hafnarfirði.
Eignin er samtals 88,2 fm og býður upp á rúmgóð og björt rými, tvö svefnherbergi, stórar svalir og þvottahús innan íbúðar. Sérgeymsla, 8,3 fm, er staðsett í sameign.
Eignin hefur fengið gott viðhald og er íbúðin ný máluð auk þess sem endurnýjað hefur verið parket og innihurðir.
Frábær staðsetning á Völlunum í Hafnarfirði, þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu. Grunnskóli, leikskóli og fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf er í nágrenninu.

Nánari upplýsingar um eignina veitir, Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali, gudrun@remax.is, sími 820-0490.

Hér getur þú kíkt í heimsókn og skoðað þessa fallegu eign.

Nánari lýsing eignar

Forstofa: Parketlögð með góðum fataskápum sem ná upp í loft.
Eldhús: Falleg og rúmgóð innrétting með góðu skápaplássi, Vandaðar steinflísar eru á milli skápa. Granítboðplata í eldhúsi og eyju. Ísskápur og uppþvottavél fylgja með. 
Stofa og borðstofa: Mjög rúmgott, opið og bjart rými með góðum gluggum. Útgengt er úr stofu á stórar og góðar svalir sem skapa skemmtilega framlengingu á íbúðinni.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru tvö og bæði með góðum fataskápum sem ná upp í loft. Parket er á gólfum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf og með baðkari/sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og innréttingu. Sérsmíðuð granítborðplata með vaski á baðherbergi.
Þvottahús/geymsla: Þvottahús er innan íbúðar með vaski og borðplötu. Flísar eru á gólfi.
Sérgeymsla: um 7,9 fm, er staðsett í sameign. Þar er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Bílastæði: Næg sameiginleg bílastæði eru fyrir framan húsið. Í sameiginlegu bílaplani er hleðslustöð frá ON.
Viðhald og endurbætur
- Íbúðin hefur nýlega verið máluð og parket og innihurðir endurnýjuð.

- Eignin hefur fengið viðhald á undanförnum árum.
- Skipt var um þak sumarið 2023 og húsið sílanborið.
- Gluggar hafa nýlega verið málaðir að utan, suðaustan- og suðvestanmegin fyrir nokkrum árum.
- Hvítur skápur í miðrými fylgir með
Húsið er steinað að utan og því viðhaldslítið. Aðkoma að húsinu og sameign er snyrtileg. Sameiginlegur garður er við húsið og lítill leikvöllur í næsta nágrenni. Virkt og gott húsfélag er í húsinu og að sögn eiganda eru góðir nágrannar og nánast allar íbúðir hússins í eigu íbúa.
Staðsetning; 
Kirkjuvellir 5 er vel staðsett eign á Völlunum í Hafnarfirði. Stutt er í skóla, leikskóla, verslun, þjónustu og fjölbreytta íþrótta- og útivistarmöguleika. Svæðið hentar því einstaklega vel fyrir fjölskyldur og þá sem vilja hafa helstu þjónustu innan seilingar.
Nánari upplýsingar um eignina veitir, Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali, gudrun@remax.is, sími 820-0490.

Forsendur söluyfirlits
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir eftir því sem unnt er að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir eða sjást ekki berum augum, svo sem lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX bendir því væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Áshamar 8
221 Hafnarfjörður
72.6 m2
Fjölbýlishús
211
853 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Eskivellir 17
221 Hafnarfjörður
79.9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
212
775 þ.kr./m2
61.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Bjarkavellir 1B
221 Hafnarfjörður
72 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
874 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Hólabraut 8
220 Hafnarfjörður
113.6 m2
Þríbýli
412
571 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin