RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynna í sölu glæsilegt 246,3 fm raðhús á tveimur hæðum með 4 rúmgóðum svefnherbergjum, aukin lofthæð er í hluta eignar. Fjölskylduvæn eign á góðum stað á völlunum í Hafnarfirði, með flottum og skjólgóðum viðarpalli með heitum potti.
Eignin skiptist í fjögur svefnherbergi, stofu og borðstofu, eldhús, tvö baðherbergi, sjónvarpsrými, þvottherbergi, bílskúr og geymslu innaf bilskúr. Fallegur viðarpallur er í bakgarði með skjólgirðingu, grillskýlí og heitum potti. Eign sem hægt er að mæla með!
Frekari upplýsingar um eignina veiti ég í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is.
Smelltu hér og þá getur þú sé kíkt í heimsókn með 3D
Frekari upplýsingar um eign:
Eignin skiptist í neðri hæð 81,8 fm.+ bilskúr 39,5 fm og efri hæð 116,3 fm, samtals 246,3 fm.
Hæð:Rúmgóð forstofa með góðum fataskápum, innangengt úr forstofu út í bílskúr.
Eldhús er rúmgott með svartri innréttingu að hluta og hvítri, tveir ofnar og innbyggð uppþvottavél fylgir. Rými er fyrir tvöfaldan ísskáp. Stór og falleg eyja er með spanhelluborði. Granít er á borðplötum.
Gestasalerni er með innréttingu, flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Stofa og borstofa eru samliggjandi í björtu og rými með gólfsíðum gluggum. Útgengt er út í fallegan og rúmgóðan viðarpall með skjólgirðingu.
Steyptur stigi er á milli hæða með fallegu handriði. Undir stiga er kózý-rými.
Efri hæð:
Fallegur og bjartur gangur.
Þrjú svefnherbergi eru á hæðinni auk hjónaherbergis sem er með fataherbergi innaf herberginu.
Mjög rúmgott og fallegt baðherbergi með flísalagðri sturtu og vegghengdu klósetti. Hvít innrétting og handklæðaofn.
Sjónvarpsrými er rúmgott með útgengi út á svalir. Rúmgóður fata/geymsluskápur er í þessu rými.
Þvottahús með glugga og góðri innréttingu með vinnuplássi, vélar geta verið í vinnuhæð.
Bílskúr: Innangengt er inn í bílskúr úr íbúðinni. Bílskúrinn er með flísum á gólfi. Innaf bílskúr er geymsla og þaðan er gengið út í bakgarðinn. Rafmagn og hiti auk vatns er í bílskúrnum.
Garður: bakgarðurinn er með fallegum sólballi með skýli fyrir td. grill, heitur pottur. Að framan er hellulagt og rúmast 2-3 bílar.
Virkilega falleg og vel um gengin eign, fallegt gólfefni(harðparket), innréttingar og lýsing er góð í eigninni. Aukin lofthæð er í hluta eignar.
Staðsetningin er góð, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu svo sem leik- og grunnskóla sem og verslun og íþrótta og tómstundastarf á Ásvöllum. Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490, gudrun@remax.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.