RE/MAX Ísland logo
Skráð 23. maí 2026
Söluyfirlit

Fagrihvammur 12

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-220
310.3 m2
9 Herb.
6 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
197.900.000 kr.
Fermetraverð
637.770 kr./m2
Fasteignamat
166.050.000 kr.
Brunabótamat
162.150.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1981
Þvottahús
Garður
Útsýni
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2074750
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Yfirfarið / Ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjað að hluta/ Upprunalegt
Frárennslislagnir
Yfirfarið / Ekki vitað
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta/upprunalegt
Þak
Yfirfarið og málað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já & pallur
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. (s.774-1477 eða herabjork@remax.is) kynna:   
Einstakt arkitektateiknað 9 herb. einbýlishús með aukaíbúð (3ja herb.), bílskúr & dáleiðandi útsýni við Fagrahvamm 12 í Hafnarfirði.
Innarlega í einum af rólegri botnlöngum Hvammanna í Hafnarfirði stendur þetta glæsilega og karakterríka einbýlishús á stórkostlegum útsýnisstað þar sem hafið, höfnin og Snæfellsjökull blasa við og mynda síbreytilega umgjörð í takt við árstíðirnar.
Húsið, sem teiknað er af Mannfreð Vilhjálmssyni og Þorvaldi S. Þorvaldssyni, sameinar sterkan arkitektúr, hlýleg fjölskyldurými og einstaka staðsetningu á afar sannfærandi hátt. Hér er um að ræða vel byggt sjónsteypuhús með mikinn karakter þar sem rými, birta og tenging við umhverfið njóta sín til fulls. SJÓN ER SÖGU RÍKARI. 

* Eign fyrir þá sem að leita að heimili með sérstöðu og fallegu yfirbragði.
Sterk tenging milli inni- og útirýma og einstakt sjávar- og fjallaútsýni.
Arkitektateiknað hús í rólegum botnlanga í eftirsóttu hverfi
* Vandaðar innréttingar / gólfefni & mjög gott birtuflæði.
Innbyggður bílskúr og pláss fyrir 4 bíla í innkeyrslu.
* Rúmgóð aukaíbúð  með möguleika á sérinngangi.
* Umfangsmikið viðhald og endurbætur síðustu ár.
* Stór, gróinn garður með sólpalli og heitum potti.

** SMELLIÐ HÈR fyrir nánari upplýsingar og/eða til að bóka tíma í EINKASÝNINGU **

Nánar um eign
Eignin er samtals 310,3m² samkvæmt Þjóðskrá Íslands og samanstendur af rúmgóðu fjölskyldurými, 4 svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi/búri, geymslu undir stiga (ekki inni í fermetratölu), innbyggðum bílskúr (41,4m²) og aukaíbúð á neðri hæð þar sem eru 2 svefnherbergi, eldús og baðherbergi. Garðurinn er stór og skjólgóður með matjurtagarði, sólpalli og heitum potti.

** SMELLTU HÉR og skoðaðu HÚSIÐ í 3-D, þrívíðu umhverfi **

Lýsing eignar
Falleg aðkoma með fáguðu yfirbragði þar sem arkitektúr hússins fellur vel að landslagi og staðsetningu.
Andyrið er flísalagt með fallegum skápum. Timbustigi leiðir upp á efri og neðri hæð og á honum er er nýtt og stílhreint stigahandrið.
Alrými hússins er einstaklega rúmgott, bjart og opið með stórum gluggum sem ramma inn útsýnið yfir höfnina og út á sjó. 
Stofan og borðstofan njóta sín sérstaklega vel með mikilli lofthæð, fallegri birtu og góðu flæði út á svalir, sólpall og þaðan út í garð. Fallegt viðarparket á gólfi.
Eldhús er flísalagt með vandaðri viðarinnréttingu og hefur verið uppfært með nýjum vaski, blöndunartækjum og lýsingu. Gott flæði og tengist fjölskyldurýmum á náttúrulegan hátt. Inna af eldhúsi er búr og þaðan er einnig gengið úr á svalir og sólpall. 
Svefnherbergin eru í heildina sex talsins (3 herb. á efri hæð, 3 herb. á þeirri neðri og af þeim tilheyra 2 herb. aukaíbúðinni) og hentar eignin því jafnt stórri fjölskyldu sem og þeim sem vilja sameina heimili og vinnuaðstöðu. Í Hjónaherbergi eru nýlegir og rúmgóðir fataskápar, parket á gólfi. 
Baðherbergi var nýlega endurnýjað á afar smekklegan og vandaðan máta. Þar er "walk-in" sturta, upphengt salerni, rúmgóð innrétting með handlaug, speglaskápur og hár veggskápur.
Garðurinn er skjólgóður, gróinn og einstaklega vel nýttur með matjurtagarði, sólpalli og heitum potti. Við smíði palls var gert ráð fyrir gufubaði með auknum styrk í burði.
Bílskúr er 41,4 m² með heitu og köldu vatni. Góð lofthæð, gryfja og mikið geymslurými.
Á neðri hæð er rúmgóð aukaíbúð sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, hvort sem er fyrir stórfjölskyldu, gesti, heimaskrifstofu eða tekjumöguleika. Hún er 3ja herbergja með 2 góðum svefnherbergjum, eldhúsi, stofu og baðherbergi með sturtu. Hægt að útbúa sérinngang ef vill. Parket á gólfi. 

Viðhald og endurbætur síðustu ára, bæði innan- og utanhúss:
Viðhaldi hefur verið sinnt af alúð vítt og breytt um húsið með það að markmiði að varðveita karakter og gæði eignarinnar. 
2024-2026:
- Baðherbergi endurnýjað á efri hæð.
- Skipt um 5 sérsmíðaða glugga m/opnanlegu fagi.
- Gluggar yfirfarnir, pússaðir og málaðir þar sem við á.
- Lýsing endurnýjuð víða um húsið.
- Sérsmíðað pólýhúðar handrið á svalir og nýtt handrið á stiga. 
- Viðgerð og endurnýjun á vegg og einangrun í herbergi á neðri hæð. 
- Kítti endurnýjað í kringum þakglugga. 
- Ný einangrun undir þakplötum til suðurs. 
2018-2020
- Þakkantur endurnýjaður ásamt þakrennum og flasningum. Niðurföll yfirfarin og endurbætt þar sem þurfti. 
- Þak yfirfarið og málað. Skipt um lok á strompi, nokkra þaksperruenda og fjalir í klæðningu.
- Yfirborð sjónsteypu yfirfarið og sprungur lagaðar.
- Hús og gluggar málað. 
Í tíð fyrrvernadi eigenda, komu upp rakatengd atriði og þá var ráðist í umfangsmiklar úrbætur, bæði utan- og innanhúss. Viðgerðir fólust ma. í endurnýjun ákveðinna vegghluta, einangrunar, glugga og dren-/þéttilausna.

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Hera Björk, löggiltur fasteignasali í 774-1477 og/ eða á herabjork@remax.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.600 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
__________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?

Ég hef starfað við fasteignasölu frá árinu 2016 og hef á þeim tíma byggt upp góða reynslu og þekkingu á markaðnum. Fyrir mér skiptir máli að ná góðu verði og leiða viðskiptavini örugglega og faglega í gegnum stærstu fjárhagslegu ákvarðanir lífsins.
Ég legg ríka áherslu á vönduð vinnubrögð, skýr samskipti og markmið mitt er einfalt: að hámarka verðmæti eignar og tryggja faglegt, skilvirkt og árangursríkt söluferli. Ég legg mig fram um að veita persónulega þjónustu með hagsmuni viðskiptavina í forgangi, öryggi og traust frá fyrsta samtali til afhendingar.
Hafðu samband fyrir frítt og skuldbindingarlaust verðmat ásamt greinargóðri ráðgjöf um næstu skref. 
S. 774-1477 / herabjork@remax.is.

 

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Fjóluás 30
221 Hafnarfjörður
300.4 m2
Einbýlishús á tveimur hæðum
627
679 þ.kr./m2
204.000.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin