RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Töluvert endurnýjuð og rúmgóð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi á vinsælum stað við Efstasund 70, í 104 Reyjavík. Eignin hefur fengið gott viðhald og umhverfis húsið er stór garður í óskiptri sameign.Smelltu hér til að skoða eignina í 3D - þvídíddarumhverfi. Eignin skiptist í forstofu, gang, stofu, eldhús og tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.Frábær staðsetning og afar miðsvæðið þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Stutt í leik-, grunn- og framhaldsskóla og alla helstu þjónustu. Nánari lýsing og skipting eignarhluta:Forstofa: Með harðparket á gólfi og fatahengi á vegg.
Gangur: Tengir saman aðrar vistverur íbúðar og harðparket á gólfi.
Eldhús: með innréttingu, vask, blöndunartæki og harðparket á gólfi.
Stofa: Er björt og rúmar vel borðstofu og setustofu. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi (l): Rúmgott herbergi með harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi (ll): Rúmgott með harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Með hornbaðkari, upphengdu salerni og ljósgrárri innréttingu. Flísar á veggjum Gluggi með opnanleg fagi.
Þvottahús: Sérþvottahús fylgir íbúðinni sem gengið er inn í úr forstofu.
Sérgeymsla: Eigninni fylgir sérgeymsla sem gengið er inn í að utan.
Garður: Stór og skjólgóður garður í óskiptri sameign er umhverfis húsið sem er gróinn og vel hirtur.
Verönd: Í bakgarði aftan við bílskúr er nokkuð rúm og skjólgóð timburverönd í sameign.
Framkvæmdir á húsi og íbúð á árunum 2000-2020 að sögn seljanda:2025: Gluggi í minna herbergi yfirfarinn.
2024-25: Farið í múrviðgerðir utan á húsinu.
2024-25: Gluggar og hurðir á íbúð málaðir.
2023. Baðherbergi endurnýjað, sett upphengt wc, baðkar og flísalagt.
2023: Neysluvatnslagnir, ofnalagnir endurnýjaðar að hluta.
2014-15: Skólplagnir endurnýjaðar að hluta.
Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á julian@remax.is - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.