RE/MAX kynnir bjarta þriggja herbergja 81,1 fm íbúð á fjórðu hæð að Einivöllum 7, Hafnarfirði. Samkvæmt Fasteignaskrá er eignin skráð 81,1 fm, þar af er geymsla í sameign 4,1 fm.
Góð staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. grunn- og leikskóla, verslun, líkamsrækt, íþróttasvæði Hauka, sundlaug, góðar göngu- og hjólaleiðir o.fl.SMELLTU HÉR OG SKOÐAÐU EIGNINA Í 3DSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDISNánari lýsing eignar:Anddyri er með dökkum flísum. Anddyri tengist gangi sem liggur inn að stofu. Innbyggður skápur er á gangi.
Stofa, borðstofa og eldhús í rúmgóðu alrými með útgang á svalir. Eldhús er með snyrtilega innréttingu með ofni, helluborði m.viftu yfir, stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp.
Hjónaherbergið er með parketi á gólfi og góðum skápum.
Barnaherbergið er með parketi á gólfi og skáp.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum og upphengdu salerni. Hvít innrétting og handklæðaofn. Baðkar með sturtu.
Þvottahús er innan íbúðar með flísum á gólfi. Innrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla fylgir íbúðinni í kjallara. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Fasteignamat 2026: 62.400.000 kr.
Allar upplýsingar veitir Magnús Filip Sævarsson, löggiltur fasteignasali á netfangið magnus@remax.is eða í síma 691-6434.
Remax fasteignasala sími 477-7777. www.remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.