Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) að Hraunbæ 4 í Reykjavík. Húsið hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum árin og er t.d. nýbúið að endurnýja alla glugga og hurðar í húsinu. Svalir eru til suðurs út frá stofu og vísa í áttina að skóglendi í Elliðaárdal. Húsfélagið hefur merkt íbúum sér bílastæði og á einu af bílastæðunum á lóð er verið að setja upp rafmagnshleðslustaura. Göngufæri er í leik- og grunnskóla. Einnig á íþróttasvæði Fylkis, sundlaug, félagsmiðstöðvar og verslanir. Frábær staðsetning.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö herbergi, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 90,1 m2. **HÉR GETUR ÞÚ SKOÐAÐ 3D AF EIGNINNI. KÍKTU Í HEIMSÓKN MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR!
Nánari lýsing:Forstofa er inn af snyrtilegum stigagangi. Innan íbúðar er forstofa flísalögð.
Eldhús er með upprunalegri Tekk innréttingu á tveimur veggjum. Milli efri og neðri skápa eru mósaíkflísar. Innst í eldhúsi er pláss fyrir borð og stóla. Gluggi snýr út í garð til norðurs. Parket á gólfi.
Stofa er björt með gluggum til suðurs og þar er útgengi út á svalir með útsýni yfir skógivaxna hlíðina í Elliðaárdal. Viðarparket á gólfi stofu.
Hol á herbergisgangi er með fataskáp í öðrum enda þess og ná rennihurðar hans upp í loft. Parket á gólfi.
Baðherbergi var endurnýjað 2023. Stæði og tengi er fyrir þvottavél. Brún skápaeining undir handlaug, veggfestur skápur og ljós. Þreplaus sturta með gleri, svartur handklæðaofn og upphengt salerni. Dökkar flísar á gólfi og ljósar upp veggi.
Herbergi I er minna herbergið og nýtist sem skrifstofa í dag. Án fataskápa. Parket á gólfi.
Herbergi II er innar á herbergisgangi. Mjög rúmgott með glugga til norðurs. Tekkfataskápur með rennihurð fyllir einn vegg. Parket á gólfi.
Geymsla er sér í sameign í kjallara. Merkt 0006. Birt stærð 5 m2.
Þvottahús og þurrkherbergi er í sameign í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara.
Bílastæði við A-gafl húss er merkt íbúð. Þar eru einnig gestastæði. Tvö önnur bílastæði tilheyra húsinu og öðum (Hraunbær 2-34). Á stærsta bílaplanið er í vinnslu að leggja fyrir rafmagnshleðslustöðvum.
Eignarhlutur íbúðar í Hraunbæ 2-6 er 3,597%
Eignarhlutur íbúðar í lóð Hraunbæ 2-34 er 0,674%
Eignarhlutur íbúðar í Hraunbæ 4 er 10,715%
Endurbætur:2025: Verið er að múrviðgera kjallaratröppur og rampa niður í hjólageymslur og ruslageymslur.
2023-2024: Allir gluggar og svalahurðar endurnýjað í húsinu. Þakkantur og túður á þaki lagaðar. Múrviðgerð á útidyratröppum og svalargólf múrviðgerð og filteruð. Viðgerðir sem kostuðu rúmar 109 m.kr.
2023: Baðherbergi í íbúð endurnýjað.
2019: Drenað við húsið, brunnar endurnýjaðir.
2017: Þakjárn og pappi endurnýjað. Dregið nýtt rafmagn í íbúð.
Fyrirhugað fasteignamat eignar árið 2026: 63.250.000 kr.-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-