RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Einstaklega falleg og björt 3-4 herbergja 94,2 fm. endaíbúð á fjórðu og efstu hæð í nýlegu fjölbýlishúsi við Gerplustræti 9, í Helgafellslandi Mosfellsbæ. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, rúmgóða borðstofu og stofu með útgengt út á svalir, tvö svefnherbergi (einfalt er að bæta því þriðja við) og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Geymsla er innan íbúðar. Vel staðsett bílastæði fylgir íbúð í upphitaðri bílgeymslu.
Góð og fjölskylduvæn staðsetning m.a. í nálægð við Helgafellsskóla og leikskóla, samgöngur og fallega náttúru allt um kring.
FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR
Upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti á netfangið gudrunlilja@remax.is.
Nánari lýsing:Forstofa er með fataskáp og flísum á gólfi, gangur kemur í framhaldi þess.
Geymsla er innan íbúðar um 3,2 fm. að stærð en
einnig er auka geymsluskápur fyrir íbúð í sameign.
Eldhús er í opnu og björtu rými með vandaðri og stílhreinni innréttingu frá Formus, smíðað upp í loft. Helluborð, bakaraofn og háfur er frá Electrolux, undirlímdur vaskur í borðplötu. Möguleiki er að bæta við eldhúseyju. Íbúðin er á enda svo rýmið er einstaklega bjart og með gólfsíðum gluggum að hluta. Úr eldhúsi er útgengt út á
svalir til suðurs með einstöku útsýni.Borðstofa og stofa er í samliggjandi opnu rými við eldhús. Samkvæmt byggingarteikningum er gert ráð fyrir þriðja svefnherberginu í stofu,
svo einfalt er að breyta og bæta við þriðja svefnherberginu.Svefnherbergin eru tvö, bæði mjög rúmgóð og björt með fataskápum.
Baðherbergi er með flíslagt gólf og vegg að hluta. Falleg og stílhrein innrétting frá Formus. Spegill með innbyggðri lýsingu. Sturta er með hertu gleri og handklæðaofn. Salerni er vegghengt með vatnssparandi þrýstirofa, handlaug er í borði innréttingar með einnar handar blöndunartæki. Hitastýrð einnar handar blöndunartæki eru í sturtu.
Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi með innréttingu og góðum skáp fyrir ofan.
Bílastæði íbúðar er í bílageymslu er merkt 01B09. Einstaklega rúmgott og vel staðsett bílastæði, grunnstöð er fyrir rafmagnsbíl.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á fyrstu hæð. Sameign er öll hin snyrtilegasta og gott aðgengi. Lyfta er í húsinu.
Myndavéladyrasími er í íbúð. Fallegar innréttingar og skápar frá Formus. Vandað harðparket frá Parki. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.