RE/MAX Ísland logo
Skráð 28. maí 2025
Söluyfirlit

Strikið 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
82.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
83.900.000 kr.
Fermetraverð
1.016.970 kr./m2
Fasteignamat
65.950.000 kr.
Brunabótamat
43.200.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Bjarni Blöndal
Bjarni Blöndal
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2006
Þvottahús
Lyfta
Garður
Útsýni
Aðgengi fatl.
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2273540
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
6
Númer íbúðar
19
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
0,46
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynnir til sölu vandaða og bjarta 82,5fm tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi með lyftu fyrir 60 ára og eldri á Strikinu 4 í Garðabæ. Falleg, björt og vel skipulögð íbúð. Yfirbyggðar opnanlegar vestur svalir. Húsið er fyrir íbúa 60 ára og eldri með sameiginlegum samkomusal sem hægt er að leigja gegn vægu gjaldi fyrir einkasamkvæmi. Í húsinu er starfandi húsvörður, innangengt í Jónshús, þjónustumiðstöð aldraðra í Garðabæ þar sem er margvíslegt félags- og tómstundastarf. Samkvæmt HMS er eignin skráð 82,5fm; íbúð 78,1fm og geymsla 4,4fm. Lokaðar svalir eru 7,7fm. 
 
Nánari lýsing á íbúð:
Forstofa með fataskápum, parket á gólfi. Borðstofa og stofa eru samliggjandi í alrými, parket á gólfi, útgengt úr stofu á yfirbyggðar, opnanlegar vestur svalir með flísum á gólfi. Eldhús með góðri L-laga innréttingu, flísar á milli, uppþvottavél, háfur, AEG tæki, parket á gólfi. Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf, góð innrétting, vegghengt salerni, góð sturta. Svefnherbergi með rúmgóðum fataskápum, parket á gólfi. Þvottaherbergi með flísum á gólfi, hillur. Geymsla I innan íbúðar með parket á gólfi og hillum, hægt að nýta sem skrifstofu eða hobbý herbergi. Af ganginum er hægt að ganga út á mjög stórar sameiginlegar svalir. Geymsla II í kjallara er 4,4fm. 

Nánar um húsið:
Félagsstarf er töluvert í húsinu, gönguhópar og önnur afþreying. Í Sjálandshverfi eru göngustígar til allra átta og stutt er í náttúruna. Verslun og þjónusta er til fyrirmyndar í Garðabæ og sundlaugin er vinsæll hressingarstaður. Í sameign hússins er húsvarðaríbúð og sameiginlegur samkomusalur. Afar vel er haldið um húsfélagsmál. Strikið 2–12 er sex hæða fjölbýlishús. Íbúðirnar eru 130 talsins og ætlaðar fólki 60 ára og eldri. Félag eldri borgara í Garðabæ hefur aðsetur á fyrstu hæð hússins. Jónshús félags- og þjónustumiðstöð er í húsinu. Íbúðir í húsinu eru ætlaðar eldri borgurum sbr. 8. gr. lóðarleigusamnings. Ef íbúð er seld til fyrirtækis eða einstaklinga yngri en 60 ára þarf Garðabær að samþykkja söluna, t.d. með áritun kaupsamnings eða afsals.  Húsið er byggt af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars árið 2006. 

Allar nánari upplýsingar veitir: Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma  662-6163 eða bjarni@rmax.is

Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. 1.Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá
 
 


 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Lautargata 3 Íb. 001
210 Garðabær
89.5 m2
Fjölbýlishús með lyftu
312
926 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Lautargata 4
210 Garðabær
89.8 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
968 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Lautargata 4
210 Garðabær
89.9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
967 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Lautargata 4
210 Garðabær
89.9 m2
Fjölbýlishús með lyftu
423
956 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin