RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynna: Fallega og rúmgóða 6 herbergja íbúð á efstu hæð (3. hæð) í litlu fjölbýli við Álfholt 32 í Hafnarfirði. Fallegt og barnvænt hverfi með leigtækjum í botnlanga, stutt er í leik- og grunnskóla.
Íbúðin er 154,9 fm á tveimur hæðum, hæð og ris, ásamt geymslu í sameign. Í dag eru fimm svefnherbergi í íbúðinni. Sameign er snyrtileg og þar er sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla. Eignin er falleg, lóðin er vel um gengin og snyrtileg. Allar frekari upplýsingar veitir Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 820-0490 eða á netfangið gudrun@remax.is.
Hér er hægt að skoða þessa fallegu eign í 3D, með því að smella hér!
Nánari lýsing
Hæð:Komið er inn í rúmgóða,
flísalagða forstofu með fataskápum.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar í opnu rými með gluggum til suðurs og útgengi út á skjólsælar suðursvalir.
Eldhús hefur verið nýlega endurnýjað og býður upp á gott skápapláss, flísar á milli skápa og rúmgott vinnupláss.
Helluborð er 80 cm breitt Studio line spanhelluborð og glæsilegur Falmec Soffio háfur sem gefur fallega birtu og útlit.
Þvottarými er inn af eldhúsi með innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er með opnanlegu fagi.
Hjónaherbergi er með flísum á gólfi og góðum fataskápum.
Herbergi við forstofu er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt, með gólfhita, handklæðaofni, baðkari, upphengdu salerni og innréttingu. Gluggi er með opnanlegu fagi.
Ris:Hvítur timburstigi liggur upp í risið.Þar er komið upp í rúmgott og
fjölskylduvænt alrými/sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Á hæðinni eru
þrjú rúmgóð svefnherbergi með þakgluggum.
Baðherbergi er flísalagt með sturtu, upphengdu salerni, innréttingu og glugga með opnanlegu fagi.
Lítil geymsla er á hæðinni.
Sér geymsla er í kjallara. Einnig er sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi, dekkja- og hjólageymsla.
Endurbætur og viðhald:- Eldhús og tæki voru endurnýjuð árið 2023
- Fataskápar og innrétting inn á baði var filmað af fagaðila.
- Ný blöndunartæki eru í eldhúsi, þvottahúsi og sturtu á baðherbergi á efri hæð.
- Húsið var múrviðgert og málað að utan árið 2020
- Nokkrum gluggum hefur verið skipt út bæði í sameign og einum glugga í íbúð.
- Ath. Sturtuklefi inn á baðherbergi í risi er orðin lélegur.
- Ath. Móða er á milli glerja í 2- 3 gluggum.
Mjög falleg og fjölskylduvæn eign á Hvaleyrarholtinu, þar sem stutt er í grunn- og leikskóla, íþróttasvæði, golfvöll og fjölbreytta útivist. Eign sem hægt er að mæla með í góðu hverfi. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.