RE/MAX Ísland logo
Skráð 30. maí 2025
Söluyfirlit

Kílhraunsvegur 8

SumarhúsSuðurland/Selfoss-804
36.5 m2
2 Herb.
2 Svefnh.
Verð
34.900.000 kr.
Fermetraverð
956.164 kr./m2
Fasteignamat
19.500.000 kr.
Brunabótamat
27.300.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2022
Garður
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2510617
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Svalir
Pallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
8 - Í notkun
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Klæða hús að utanverðu og fá lokaúttekt.
Kvöð / kvaðir
Kvöð um aðild að lóðafélagi. 
RE/MAX &  HERA BJÖRK Lgf. (s. 774 1477 / herabjork@remax.is) KYNNA:
Sjarmerandi sumarhús ásamt gestaúsi á sérlega fallegri 6030 m²  eignalóð við Kílhraunsveg 8 í Áshildarmýri, Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Falleg fjallasýn blasir við í allar áttir og er ca.10-20 mínútna akstur í næstu þjónustukjarna sem eru Selfoss, Flúðir og Laugarás.  SJÓN ER SÖGU RÍKARI.

- Góður vegur og bílastæði. 
- Þriggja fasa rafmagn og kalt vatn.
- Gegnumstreymishitari fyrir heitt vatn. 
- Grasflatir og 2 falleg útisvæði í hrauninu
- Félagsgjald Lóðafélaga er 50.000.kr á ári. Kvöð um félagaaðild. 
- Byggingarréttur verður allt að 300 m² (umsóknaferli á lokametrum)

** SMELLIÐ HÉR til að fá ítarlegri upplýsingar eða bóka tíma í skoðun **
** SMELLIÐ HÉR til að fá söluyfirlitið sent samstundis **


Sumarhúsið er 36,5 m² og skiptist í alrými (stofa/eldhús) og 2 herbergi. Um er að ræða bjálkahús byggt 2022 með góðum möguleika á stækkun seinna meir. Húsið er á byggingarstigi 8 (tekið í notkun, í byggingu) og á eftir að fá lokaúttekt. Eftir er að einangra húsið að utan til að svo verði. 

NÁNARI LÝSING: 
Alrými (Eldhús, Borðstofa og Stofa): Í eldhúsi er snotur innrétting með ísskáp. Borðstofa er í beinu framhaldi ásamt setustofu með útsýni út á fallegt svæðið og aðgengi út á pallinn.
Svefnherbergi I: Hjónaherbergi með salernisaðstöðu. Áform um að breyta í baðherbergi við stækkun í framtíðinni. 
Svefnherbergi II: Hátt rúm með svefnstæði undir. 
Geymsla: Lokuð og ágæt verkfærageymsla.
Gestahús: Er 12 m², óskráð, með sturtu, salerni og vask. Það er að fullu einangrað.
Pallur er utan um allt húsið og að gesthúsinu. Búið er að tengja rotþró (2700 L), kalt vatn og rafmagn. Heitt vatn, sími og ljósleiðari komið inn á lóð. 

Búið er að nostra við lóðina síðustu ár og gróðursetja mikið af trjám og má þar helst nefna greni, birki, reyni og nokkrar aspir.
Töluverð jarðvinna hefur farið fram og eru 2 góðar grasflatir á landinu sem er að öðru leyti prýtt fallegu hraun með tilheyrandi lautum og lifandi landslagi.
Í tvær mjög fallegar lautir hefur verið smíðaður pallur. Í aðra þeirra er gönguleið að pallinum þar sem kjörið er að setja heitan pott.
Hin lautin hefur verið hönnuð fyrir skemmtilegar samverustundir með gítarspil og söng í huga. Stórum trjábolum hefur verið komið þar fyrir sem sæti og grenitrjám verið plantað í hlíðarnar fyrir enn meiri skjólmyndun í framtíðinni.

NÁNAR UM SVÆÐIÐ:
Áshildarmýri er í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Frístundabyggðin er í nokkra mínútna akstri frá Selfossi og í næsta nágrenni við margar af helstu náttúruperlum landsins s.s. Þingvelli, Laugarvatn, Kerið, Gullfoss og Geysi.
Fjölbreytt afþreying er í boði í nágrenni svæðisins og má þar nefna golfvelli, sundlaugar, veiðisvæði, en alla þjónustu má nálgast á Selfossi sem er aðeins í 10 mínútna fjarlægð frá svæðinu. Ægifagur fjallahringur blasir við af landinu sem er allt gróið og kjörið til ræktunar.
Á svæðinu í heild eru 73 eignalóðir og eru 2 götur í hverfinu, Áshildarvegur og Kílhraunsvegur. Áshildarvegur er skráður sem íbúabyggð.
Allar lóðir við Kílhraunsveg eru í sama umsókanferli sem er langt komið og klárast á næstu vikum. Við þessa breytingu mun td. verða hægt að byggja stærri hús og skrá sig til lögheimilis. 
Nýtingarhlutfall í núverandi skipulagi er 0,03 af lóð en fer upp í 0,05 með breyttu deiliskipulagi og mun samkvæmt þeim breytingum vera hægt að byggja allt að 300 m2 hús á Kílhraunsvegi 8.
Allir vegir eru tilbúnir og eru á ábyrgð lóðarfélags að viðhalda inn í framtíðina. 

HVAÐ ER ÁSHILDARMÝRI?
Áshildarmýri er sögustaður og forn samkomustaður neðarlega á Skeiðum.  Ólafur tvennumbrúni nam Skeiðin skv. Landnámu.  Kona hans var Áshildur.  Að Ólafi látnum lagði Þorgrímur örrabeinn hug á hana en sonur hennar, Helgi, var á móti ráðahagnum.  Hann sat fyrir Þorgrími fyrir neðan Áshildarmýri og drap hann. 
Áshildarmýri er í dag skipulögð blönduð byggð sumarhúsalóða og búsetulóða. Þar hafa verið selda lóðir og byggð sumarhús í um áratug og enn eru einhverjar eftir og áhugavert að kynna sér fyrir þá sem hafa hug á slíku. Í Áshildarmýri er hitaveita og þ.a.l. nóg af heitu vatni fyrir ábúendur. Auk þess er kalt vatn, 3ja fasa rafmagn og ljósleiðari að lóðamörkum. Í miðju svæðissins stendur skógrækt Árnesingafélagsins í Reykjavík og þar stendur fallegt minnismerki um Áshildarmýrarsamþykktina sem gerð var 1496.
Áshildarmýrarsamþykktin 1496 sneri að því að grípa til nauðsynlegra ráðstafana til verndar réttindum sem Íslendingar höfðu tryggt sér með Gamla sáttmála. Þarna bundust Árnesingar jafnframt samtökum um að hrinda af sér hvers konar yfirgangi og órétti af hendi erlendra og innlendra umboðsmanna konungsvaldsins. Árnesingar komu saman að Áshildarmýri á Skeiðum, og var tilefnið yfirgangur Lénharðs fógeta og fleiri valdamanna í héraðinu. Fyrir áhugasama er HÉR linkur á útvarpserindi sem lesið var upp um samþykktina í maí 1944 og birt var í ÞJÓÐVILJANUM

Allar nánari upplýsingar veitir Hera Björk, löggiltur fasteignasali - herabjork@remax.is / s.774 1477

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
_________________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Ég hef starfað við Fasteignasölu frá janúar 2017 þegar ég ákvað að venda mínu kvæði í kross og hefja störf sem fasteignasali. 
Ég legg mig fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá mér færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.
Hafðu samband í dag í síma: 774-1477 eða á netfangið herabjork@remax.is 

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Miðdalur S-gata 7
806 Selfoss
56.2 m2
Sumarhús
413
621 þ.kr./m2
34.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin