** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA** Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:Nýleg og falleg 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í góðu fjölbýli í Úlfarsárdal með sérmerkt stæði á besta stað í lokaðri bílageymslu. Eignin nýtur einstaklega fallegs útsýnis til fjalla og sjávar og er staðsett í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 86,6 fm, þar af er sérgeymsla 8,2 fm.** Einn eigandi og er eignin lítið notuð þar sem eigendur eru búsettir úti á landi **SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT sent til þín samstundis
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagnaÍbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, opið eldhús-, stofu- og borðstofurými og forstofu/anddyri.
Nánari lýsing eignar:Forstofa / anddyri: Rúmgóð forstofa með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Rúmgott
baðherbergi með walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og vandaðri innréttingu við og undir handlaug.
Sér innrétting er í kringum tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gluggi er á baðherberginu sem tryggir góða loftræstingu. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Svefnherbergin eru tvö, hjónaherbergi og barnaherbergi. Bæði eru rúmgóð með góðu skápaplássi og parketi á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu og björtu samliggjandi rými með stórum gluggum til tveggja átta sem gefa eigninni einstaklega góða birtu. Útgengt er úr stofunni á rúmgóðar vestursvalir með fallegu útsýni.
Eldhúsið er með vandaðri innréttingu, góðu skápaplássi, innbyggðum ísskáp og tengi fyrir uppþvottavél. Öll talki í eldhúsi eru frá Gorenje; - ísskápur, helluborð og vifta sem er innfelld í efri skápa.
Allar innréttingar í íbúðum, innihurðir, parket og flísar eru frá Parka ehf.Sérgeymsla eignarinnar er í sameign og er 8,2 fm. Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu og er það bílastæðið sem er næst inngangni í stigahúsið. Rafmagnskassi til tengingar fyrir hleðslustöð við bílastæðið er við bílastæðið við hliðina.
Sameignin er öll hin snyrtilegasta, geymslur merktar og einnig er rúmgóð hjóla-og vagnageymsla. Master lyklakerfi er í húsinu.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk