Berglind Hólm lgfs og RE/MAX kynna: Björt og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 3.hæð með stæði í lokuðum bílakjallara. Í eigninni er 3 góð svefnherbergi, mjög rúmgóð stofa, eldhús, baðherbergi og sér þvottaherbergi. Í sameign er svo rúmgóð geymsla og gott stæði í lokaðri bílageymslu. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, matsölustaði, grunnskóla og leikskóla. Búið er að leggja fyrir rafmagni að stæðinu sem fylgir íbúðinni og því auðvelt að setja þar hleðslustöð. í stuttu göngufæri frá eigninni eru 3 leikskólar og tveir grunnskólar.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsing eignar. Forstofa: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Forstofan er stúkuð af að hluta frá stofu með léttum glerflísavegg. Þrefaldur fataskápur liggur veggja á milli og nær upp í loft. Stofa + borðstofa: Stofan og borðstofan eru saman í opnu góðu rými með parketi á gólfi. Góðir vesturgluggar eru í rýminu sem hleypa fallegri birtu inn. Gengið er út á svalir frá stofurýminu. Svalirnar liggja í vinkil við vestur og suðurhlið hússins. Opið er að hluta frá stofunni inn að eldhúsinu. Eldhús: Hægt er að ganga inn í eldhúsið á tvo vegu, bæði frá gangi sem leiðir að herbergjunum og einnig frá stofunni. Innrétting er á tvo veggi með efri og neðri skápum beggja vegna. Innréttingin er með hvítum framhliðum og viðar á víxl. Innst í rýminu er góður borðkrókur við glugga. Flísar eru á gólfi. Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf. Nýleg hvít innrétting er undir vaski og við hlið vaskeiningarinnar. Einnig er speglaskápur á vegg fyrir ofan vask. Baðkar er með glerskilrúmi og sturtuaðstöðu. Salernið er upphengt. Handklæðaofn er á vegg við innréttingu. 3 x svefnherbergi: Svefnherbergin eru 3 öll með góðum fataskápum. Parket er á gólfi í hjónaherbergi og dúkur er á gólfi í barnaherbergjum. Þvottaherbergi: Innan íbúðar er sér þvottaherbergi með flísum á gólfi og hillum á veggjum. Geymsla: Í sameign er góð 7,4 m2 geymsla með hillum. Stæði í bílageymslu: Gott stæði fylgir íbúðinni í bílageymslu þar sem búið er að leggja fyrir rafmagni að stæðinu og því auðvelt að láta setja hleðslustöð.