RE/MAX Ísland logo
Skráð 6. mars 2026
Söluyfirlit

Lækjarbraut 14

EinbýlishúsSuðurland/Hella-851
205.2 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
87.000.000 kr.
Fermetraverð
423.977 kr./m2
Fasteignamat
61.800.000 kr.
Brunabótamat
92.000.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Vilhelm Patrick Bernhöft
Vilhelm Patrick Bernhöft
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1974
Þvottahús
Garður
Margir inngangar
Fasteignanúmer
2197495
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Sagt í lagi
Raflagnir
Sagt í lagi
Frárennslislagnir
Sagt í lagi
Gluggar / Gler
Sagt í lagi
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Stór pallur
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX, Vilhelm Patrick Bernhöft löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu: LÆKJARBRAUT 14 Í RANGÁRÞINGI YTRA - EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ 
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 205,2 fm þar af er bílskúr 68,8 fm, nánar tiltekið eign með fastanúmerið 217-7495 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Fallegt og rúmgott einbýlishús á einni hæð að Lækjarbraut 14 í Rangárþingi Ytra. Húsið er alls 205,2 fm að stærð, þar af er rúmgóður bílskúr 68,8 fm.
Eignin stendur á fallegum og friðsælum stað þar sem náttúran fær að njóta sín, en um leið er stutt í helstu þjónustu og samgöngur. Um er að ræða einstaklega notalegt búsetuumhverfi þar sem víðáttan, kyrrðin og fallegt landslag skapa mikil lífsgæði.

Húsið er allt á einni hæð og skipulag þess er þægilegt og fjölskylduvænt. Í húsinu eru fjögur góð svefnherbergi, rúmgott eldhús og björt stofa/borðstofa sem mynda samfellt og notalegt alrými fyrir fjölskyldu og gesti. Baðherbergið er smekklega frágengið með stórri sturtu og er flísalagt í hólf og gólf. 

Frá húsinu er gengið út á stóran pall sem snýr í suð-austur og nýtur því góðrar birtu og sólar. Á pallinum er heitur pottur og útisturta sem skapar frábæra aðstöðu til slökunar og útivistar í fallegu umhverfi.

Rúmgóður bílskúr, alls 68,8 fm, fylgir eigninni og býður upp á gott geymslu- og vinnupláss auk þess sem hann hentar vel fyrir þá sem vilja hafa gott rými fyrir bíla, verkfæri eða áhugamál.

Húsið hefur hlotið gott viðhald og endurbætur frá því að núverandi eigandi eignaðist það og hefur verið vel hugsað um eignina í gegnum árin. Í húsinu er gólfhiti.

Helstu endurbætur:

2008
Nýtt eldhús sett upp, nýir fataskápar í öllum herbergjum, nýjar innihurðir, ný gólfefni lögð og stór pallur smíðaður.
2012
Nýir gluggar settir í allt húsið.
2022
Nýtt járn sett á þak, nýjar rennur og klætt undir þakkant. Pallur stækkaður og pottasvæði smíðað ásamt útisturtu.
Baðherbergi tekið algerlega í gegn með vönduðum innréttingum og blöndunartækjum.
Lóð endurskipulögð og einfölduð.
Bílskúr tekinn í gegn, nýir gluggar og hurðir í bílskúr, innveggir klæddir auk þess sem gryfju var lokað.

Eignin getur hentað bæði sem heilsársbústaður eða glæsilegt sumarhús fyrir þá sem vilja njóta kyrrðar og náttúru á fallegum stað í Rangárþingi Ytra. Hér er um að ræða fallega og rúmgóða eign á góðum stað þar sem sameinast þægilegt skipulag, góðar endurbætur og friðsælt umhverfi.

Nánari lýsing:

Forstofa:
Flísalögð með fataskáp.

Stofa/borðstofa: Opnar og bjartar samliggjandi stofur með parketi á gólfi.

Eldhús: Stórt og rúmgott eldhús með borðkrók.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Stór sturta, salerni og innrétting með vaski.

Svefnherbergi 1: Gengið er inn í herbergið frá forstofu. Parket á gólfi og fataskápur.

Svefnherbergi 2: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.

Svefnherbergi 3: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.

Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott með parketi á gólfum og fataskáp.

Þvottahús: Inn af eldhúsi. Ljósar flísar á gólfi og innrétting með vaski.

Bílskúr: Stór bílskúr með aukinni lofthæð. Eftir er að fullklára frágang að innan.

Nánari upplýsingar veitir Vilhelm Patrick Bernhöft Löggiltur fasteignasali, í síma 6639000, tölvupóstur vilhelm@remax.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af löggiltum fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
 
Byggt 1983
6.9 m2
Fasteignanúmer
2197495
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
22.100.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Opið hús:03. okt. kl 18:00-18:30
Image
Opna eign
Hásteinsvegur 36
825 Stokkseyri
185.6 m2
Einbýlishús á einni hæð
533
484 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin