RE/MAX og Oddur fasteignasali kynna í einkasölu: Vel skipulögð og björt tveggja herbergja íbúð í Hraunbæ 102F. Íbúðin er á annarri hæð og er samtals 64,8fm þar af geymsla 6,7fm. Eignin skiptist í svefnherbergi, stofu/borðstofu, baðherbergi og eldhús.
***Íbúðin er laus við kaupsamning***
Allar nánari upplýsingar veitir Oddur í síma 782-9282 eða á oddur@remax.is
Smelltu hér til að skoða eignina í 3-D
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent beint af vef remax.isNánari lýsing:Forstofa: með parketi á gólfi og fataskáp.
Eldhús: hvít viðar innrétting, tengi fyrir uppþvottavél, ofn í góðri vinnuhæð, parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: eru í sameiginlegu opnu rými með parketi á gólfi og útgengi á svalir sem snúa í austur.
Svefnherbergi: er rúmgott með parketi á gólfi góðum fataskáp.
Baðherbergi: flísar á gólfi, walk in sturta. Tengi fyrir þvottavél.
Um er að ræða snyrtilega eign á eftirsóttum stað í Árbænum, mikil náttúrufegurð allt um kring og fallegar gönguleiðir í Elliðaárdalnum. Stutt er í skóla og leikskóla ásamt allri helstu þjónustu í næsta nágrenni. Frábær fyrstu kaup.
Allar nánari upplýsingar veitir Oddur í síma 782-9282 eða á oddur@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk