RE/MAX Ísland logo
Skráð 27. nóv. 2026
Söluyfirlit

Þórunnargata 3

EinbýlishúsVesturland/Borgarnes-310
164.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
517.052 kr./m2
Fasteignamat
68.950.000 kr.
Brunabótamat
92.900.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Berglind Hólm Birgisdóttir
Berglind Hólm Birgisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1965
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2111878
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
ekki vitað
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
endurnýjað að hluta
Þak
ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
verönd
Upphitun
ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Fallegt og vel viðhaldið einbýlishús á einni hæð á besta stað miðsvæðis í Borgarnesi. Glæsilegt útsýni yfir sjóinn, Hafnarfjallið og kirkjuna er frá stofunni, eldhúsinu og frá garðinum. Bæði hús og lóð hafa fengið gott og reglubundið viðhald og eru almennt í góðu ástandi. Skipulag eignar: forstofa, gestasalerni, stofa + borðstofa, eldhús, baðherbergi, 3 x svefnherbergi, þvottaherbergi, geymsla, bílskúr og garðskáli.
Hluti af því sem framkvæmt hefur verið er: búið er að endurnýja stóran hluta af gluggum hússins. Árið 2026 var settur varmaskiptir á neysluvatnið og lokað kerfi. Húsið var málað að utan árið 2024. Þak var málað og yfirfarið árið 2017. Margt annað hefur verið gert fyrir eignina í gegnum árinn og er nákvæmari upptalning er hægt að nálgast hjá fasteignasala.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í sima 694-4000 eða berglind@remax.is
 
Nánari lýsing eignar:

Komið er að húsinu upp á 2 góð bílastæði fyrir framan eignina. Lóðin er tæpir 800 m2 og stendur á glæsilegum útsýnisstað miðsvæðis í bænum. Lóðin er afmörkuð í kringum eignina með fallegum runna. Garðurinn er stór með grasi, stórri timburverönd og góðu steyptu svæði umhverfishúsið svæði.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með ljósum flísum á gólfi og góðum fataskáp með rennihurðum.
Gestasalerni: Inn af forstofu er gestasalerni með físum á gólfi og flísum upp á miðjan vegg. Speglaskápur er á vegg fyrir ofan vaskinn. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Eldhús: Eldhúsið er rúmgott í sér rými við hliðina á stofunni. Góð innrétting er á fjóra veggi. Innréttingar eru úr kirsuberjarvið með uppbroti á hluta af framhliðum í grábláum sprautulökkuðum lit. Góður borðkrókur er í rýminu við skemmtilegan útsýnisglugga. Innangengt er frá eldhúsinu að þvottahúsinu.
Stofa + borðstofa: Setustofan og borðstofan eru saman í opnu rými með glugga á tvær hliðar. Parket er á gólfi. Gengið er út á timburverönd frá stofunni og þaðan út í garðinn. Stórglæsilegt útsýni er frá stofunni yfir sjóinn, kirkjuna og Hafnarfjallið frá rýminu.
Baðherbergi: Baðherbergið er með ljósum flísum og á veggjum. Innrétting er með góðu skápaplássi undir vaskaborði og upp á vegg beggja vegna við spegilinn. Góð sturta lokuð með gleri er beint á gólf. Opnanlegur gluggi er í rýminu. Gólfhiti er í rýminu.
3 x svefnherbergi: þrjú svefnherbergi eru í eigninni. Öll herbergin eru með parketi á gólfi og góðir fataskápar eru í tveimur þeirra.
Þvottaherbergi + geymsla: Inn af eldhúsinu er mjög rúmgott þvottaherbergi með góðri innréttingu og skápaplássi. Inn af þvottaherberginu er góð geymsla með gluggum. Auka inngangur er framan á húsinu beint inn í þvottaherbergið sem nýtist þá einnig sem auka forstofurými.
Bílskúr: Bílskúrinn er 33,5 m2 með góðum gluggum og sjálfvirkum bílskúrshurðaropnara. Inngönguhurð er inn í bílskúrinn við hliðina á innganginum inn í þvottahúsið sem leiðir inn í íbúðarhluta eignarinnar.
Sólskáli: Gróðurskáli er í garðinum.
 
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Byggt 1967
33.5 m2
Fasteignanúmer
2111878
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
14.000.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
Image
Opna eign
Breiðvangur 10
220 Hafnarfjörður
142,6 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
513
595 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Fríðugata 5
815 Þorlákshöfn
142 m2
Parhús á einni hæð
413
598 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Vallakór 1-3
203 Kópavogur
128,2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
413
686 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Hrísholt 24
800 Selfoss
184,9 m2
Fjölbýlishús
514
452 þ.kr./m2
83.500.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin