Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX fasteignasala kynna í einkasölu:
Glæsilegt og vel skipulagt 345,0 fm. einbýlishús við Þrastanes 14, 210 Garðabæ, þar af er innbyggður tvöfaldur bílskúr og aukaíbúð með sér inngangi.
Húsið er frá árinu 1981, arkitekt Þorvaldur Kristmundsson
Halldóra Vífilsdóttir arkitekt teiknaði breytingar á húsi að innan árið 2008 þegar húsið var en innréttað að nýju.
Umbætur lóðar teiknaðar af Ólafi Melsteð landslagsarkitekt.
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Þak, rennur og niðurföll hússins er nánast viðhaldsfrí með eir/kopar þaki.
Vel staðsett hús á 1301,0 fm. eignarlóð á Arnarnesi með fallegum einföldum garði og flotta útiaðstöðu með tveimur viðar veröndum til austurs og suðurs og svölum til vesturs og norðurs. Húsið nýtur því sólar frá morgni til kvölds að sumarlagi með fallegu útsýni til vesturs yfir Kópavog og alla leið til Snæfellsjökuls. Nýlegur heitur pottur er á austur verönd og nýleg hleðslustöð fyrir rafbíl. Innbyggður bílskúr er tvöfaldur og bílastæði við húsið er mjög stórt, hellulagt og með snjóbræðslu. Nýlegt 15,0 fm. garðhús á lóðinnu fylgir með.
Smelltu á hlekkinn til að skoða húsið í þrívíddSmelltu á hlekkinn til að skoða auka íbúðina í þrívíddBókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.is
Nánari lýsing:Komið er inn í mjög rúmgóða forstofu á neðri hæð með flísum á gólfi, þar á hæðinni er mjög stórt og rúmgott svefnherbergi með gegnheilt parket á gólfi. Gott baðherbergi er þar við hlið með flísum á gólfi og á hluta af veggjum. Sturta með glerþili, handklæðaofn, upphengt salerni, baðskápur og baðinnrétting með handlaug og skápum þar undir. Stór geymsla með málað gólf og sér þvottahús þar við hlið með flísum á gólfi og L-laga innréttingu með tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, skolvask og mjög gott skúffu- skápa- og vinnupláss. Á forstofu ganginum er fataskápur með rennihurðum, þar á bak við skápinn væri möguleiki að opna inn í aukaíbúðina fyrir þá sem það vilja. Úr forstofu er líka innangengt á vinstri hönd í um 51,8 fm. fm tvöfaldan bílskúr með rafdrifnar bílskúrshurðir, og heitt og kalt vatn ásamt skolvaski. Á neðri hæð er einnig ca. 45 fm íbúð með sérinngangi, eldhúsinnréttingu, baðherbergi og geymslu. Hægt er að opna á milli íbúðar og forstofu, en íbúðin er með sömu gólf flísum og forstofan.
Steyptur fallegur bogadreginn stigi með næturlýsingu í og parket þrepum leiðir upp á efri hæð frá forstofunni.
Þegar upp er komið, er þar hol, borðstofa, stofa, stórt eldhús og sér sjónvarpsherbergi. Hjónaherbergi með fataherbergi, annað svefnherbergi og baðherbergi. Gólfefni á efri hæð er sama parket og í herbergi á neðri hæð og í stiganum. Efri hæðin er mjög björt og flott með víðsýnt útsýni og útgengi út á svalir sem eru L-laga og vísa til vesturs og norðurs með fallegt útsýni út að Kópavogi og að Snæfellsjökli á góðum degi. Stofan er björt og falleg með hátt til lofts. Eldhús er stórt með fallegri tímalausri hvítri innréttingu og stórri eyju. Í eyju er innfelld flott eldunargræja með gas helluborði og tveimur ofnum. Borðplata er hvít Corian borðplata. Tvöfaldur ísskápur og innbyggð uppþvottavél er ný. Í eldhúsi er pláss fyrir annað borðstofuborð og þar er líka huggulegur set krókur. Frá hinni borðstofunni er útgengt út á verönd sem snýr í austur, þar er heitur pottur og skjólveggir. Sjónvarpsstofan er sér við hliðinna á borðstofunni, rúmgott og bjart rými með rennihurð og gólfsíða glugga sem vísa út á suður verönd með skjólveggjum. Svefnherbergisgangur, hann er hægt að loka hann af með hurð, þar er rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi og útgengi út á svalir sem vísa til austurs í morgunsólina ( hjónaherbergið var áður þrjú barnaherbergi ). Á svefnherbergisganginum er annað rúmgott svefnherbergi og þar við hlið er baðherbergi með gólfhita, flísalagt gólf og flísalagð veggir. Sturta með innbyggðum blöndunartækum og sér baðkar ásamt upphengdu salerni og handklæðaofni. Baðinnrétting er hvít með Corian borðplötu og skúffum þar undir, stór speglaskápur þar fyrir ofan með lýsingu í. Úr holi er innfelldur stigi upp á kalt geymsluloft sem er með ca. 25,0 fm viðargólfi og lofthæð er frá 1,2 til 2,4m. ( Geymsluloft er ekki inn í skráðum fm hússins )
Gólfefni og innréttingar eru smekkleg og samræmd fyrir öll rými. Lýsing í húsinu var endurnýjuð með fallegum led dimmanlegum ljósum frá Lumex. Þá er búið að endurnýja og bæta við útilýsingu við og kringum húsið. Vel hefur verið hugað að húsinu, bæði að innan sem að utan.
Stúdíó - íbúð: Á neðri hæð er rúmlega 40,0 fm. studíó íbúð með sérinngangi, eldhúsinnréttingu, baðherbergi og geymslu. Hægt er að opna á milli íbúðar og forstofu, en íbúðin er með sömu golfflísum og forstofan. Gengið er inn í aukaíbúð á norðurhlið hússins. (Þar er eigandi með fótaagerðarstofu, og heimild fyrir slíka nýtingu á húsnæðinu)
Viðhald/endurbætur - 2008: Húsið innréttað að nýju, innréttingar og gólfefni samræmd ásamt því að sett var eir/kopar á þak, rennur og niðurföll hússins.
· 2019: Hús málað að innan og gluggar.
· 2020: Húsið málað að utan og gluggar. Innilýsing endurnýjuð með dimmanlegum ljósum.
· 2021-2022: Lóð tekin í gegn og einfölduð, bílaplan stækkað, tekur 5-10 bíla. Garðhús byggt og pallar lagfærðir og endursmíðaðir að hluta. Gróðursett nokkur tré.
· 2023: Útilýsing sett upp hringinn kringum húsið, stýrð með klukku
· 2024: Köld geymsla innréttuð upp á háalofti, viðarklætt gólf og rými afmarkað, ca. 25 fm með lofthæð frá 1,3-2,4m. Ný heitavatns heimtaug lögð frá götu og inn að lagnagrind.
· 2025: Heitavatnspottur endurnýjaður (heitirpottar.is) og sett upp ný grind með segullokum.
· 2026: Hleðslustöð fyrir rafbíl sett upp
Hér er um að ræða frábært tækifæri til að eignast fullbúið, vandað og tímalaust einbýli á rólegum og einum besta og eftirsóttasta stað á höfuðborgarsvæðinu.Nánari upplýsingar veitir: Guðlaugur J. Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 661- 6056 / gulli@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.