RE/MAX Ísland logo
Skráð 17. jan. 2025
Söluyfirlit

Skúlagata 40b

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
154.9 m2
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
117.900.000 kr.
Fermetraverð
761.136 kr./m2
Fasteignamat
98.150.000 kr.
Brunabótamat
83.140.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Gylfi Jens Gylfason
Gylfi Jens Gylfason
Löggiltur fasteignasali / Lögmaður
Byggt 1990
Þvottahús
Lyfta
Garður
Aðgengi fatl.
Sameiginlegur
Fasteignanúmer
2003547
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
sjá lýsingu
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Austursvalir og sameiginlegar til vesturs
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Sjá húsfélagsyfirlýsingu. 
Gallar
Móða í sumum glerjum í stofuglugga.
upphleypt málning á smá stað neðan við eldhúsglugga. Mögulega gamalt fyrir glerjaskipti.
Kvöð / kvaðir
Kaupandi þarf að hafa náð 60 ára aldri (annað hjóna) og skrá sig í Félag eldri borgara í Reykjavík gegn mjög hóflegu árgjaldi sem er auðvelt að ná til baka með afsláttarkorti eldri borgara.
**EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA UM FJÁRMÖGNUN**
ÞÚ GETUR HAFT SAMBAND VIÐ GUÐBJÖRGU HELGU (gudbjorg@remax.is )OG GYLFA JENS (gylfi@remax.is)EF ÞÚ VILT VERA Á BIÐLISTA, KOMI EIGNIN AFTUR Í SÖLU.

Gylfi Jens og Guðbjörg Helga löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX kynna Skúlagötu 40B, 101 Reykjavík.

Björt og vel skipulögð 4-5 herbergja penthouse íbúð á 4. og efstu hæð í góðu fjölbýlishúsi með lyftu fyrir 60 ára og eldri við Skúlagötu 40B í Reykjavík. Það er aukin lofthæð og stórir gluggar í íbúðinni sem gefa góða birtu og einstakan sjarma. Svalir eru til austurs og sérstæði er í upphitaðri bílageymslu. Eignin er skráð 154,9 fm hjá Fasteignaskrá, þar af íbúðarhluti 139,9 fm og sérstæði í bílageymslu er skráð 15,0 fm. Tvær geymslur eru í íbúðinni sem liklega eru ekki allar í fm og síðan leigir eigandi geymslu af húsfélaginu og er það gjald rukkað með hússjóði. Aðeins tvær íbúðir eru á hæðinni og eru sameiginlegar þaksvalir til vesturs milli íbúðanna (sameign allra). Húsið er með 10 íbúðum en húsfélagið samanstendur af húsum 40, 40A og þessu húsi 40B og á sameiginlegri lóð sem er eignarlóð eigendanna, snjóbræðsla er á lóðinni og einnig á Hverfisgötu, en ekki á stuttum hluta Barónstígs þar á milli. Í sameign hússins sem er talsvert meiri en gengur og gerist er aðstaða með heitum potti, sauna og þrektækjum, samkomusalur og fleira sem talið er upp hér á eftir.

                   **SÆKTU SÖLUYFIRLIT HÉR MILLILIÐALAUST** 

                   ** 3-D: SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD OG MÁTAÐU ÞIG OG HÚSGÖGNIN ÞÍN MEÐ MÆLISTIKUNNI  - SMELLTU HÉR**

        NÚVERANDI SKIPULAG: 
Forstofa, 2 gangar, stofa, sjónvarpsstofa, eldhús, baðherbergi, 2 herbergi, þvottaherbergi  og 2 geymslur innan íbúðar. Sérstæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu.

        NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Gólfefni íbúðar er parket fyrir utan baðherbergi og þvottahús þar sem eru flísar.
Forstofa: Rúmgóð með fataskápum.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum skáp.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með fataherbergi.
Geymsla 1: Er innaf fataherbergi í hjónaherbergi (sjá teikningu). 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting með granítborðplötu, upphengt salerni, baðkar og flísalögð sturta. Handklæðaofn.
Sjónvarpsstofa: Mjög rúmgóð með glerþaki yfir að hluta. Útgengt á hellulagðar svalir til austurs.
Geymsla 2: Er innaf sjónvarpsstofu (sjá teikningu).
Stofa: Afar stór og björt  með mikilli lofthæð.
Eldhús: Er með svartlakkaðri innréttingu með graníti á borðum. Bakaraofn, helluborð og vifta. Stæði fyrir uppþvottavél. Góð borðaðstaða er í eldhúsi við útbyggðan glugga.
Þvottahús: Er innaf eldhúsi. Stæði fyrir þvottavél og þurkara. Hillur og innrétting með vaski.
Sérbílastæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. Stæðið er nr. B24.
Núverandi eigandi er með leigusamning við húsfélag um geymslu nr. 13  sameiginlegu rými í kjallara. Leigugjald er kr. 2.500,- á mánuði.

       SAMEIGN HÚSA NR. 40, 40A OG 40B 
Þvottaaðstaða fyrir bílastæðaeigendur í bílastæðahúsi hússins.
Sameiginleg hjólageymsla í bílastæðahúsi.
Sameiginleg bílastæði í porti milli húsanna með innkeyrslu frá Barónsstíg og einnig eru stæði neðan húss nr. 40 þar sem ekið er inn í bílastæðahús sem er á jarðhæð.
Sameiginlegt þvotta þurrkherbergi, stórt og með lökkuðu gólfi og snúrum (hjá húsi 40B)
SPA -aðstaða: Líkamsræktaraðstaða með heitum potti og  sauna (hjá húsi nr 40)
Samkomusalur (á 2. hæð nr 40) sem er leigður út á mjög hóflegu verði (10.000)
Húsvarðaríbúð sem er í útleigu (nr 40) til aðila sem sér um þrif á sameign.
Innangegnt er á milli húsanna þriggja um bílastæðahús. Lyklakóða eða rafmagnsdropa þarf til að opna dyr.
Lóð: Öflugt snjóbræðslukerfi er á bílaplönum og göngustígum lóðarinnar. Sameignilegir grasblettir.
Ruslageymslur: Eru í bílastæðahúsi við inngang í hvert þriggja húsanna.

      FRAMKVÆMDASAGA
Nýlega var húsið múrviðgert og málað að utan og þak, þakrennur og niðurföll endurnýjuð (húsfélag)
Búið er að endurnýja alla hitaveituofna í íbúðinni (séreign)
Lóðin er falleg með tyrfðum flötum og hellulögðum stéttum með hitalögnum undir og næg bílastæði eru á lóð hússins Barónsstígs megin og einnig neðan húss.
Búið er að endurnýja gler að hluta í íbúðinni og sett sólarvarnargler.

Fyrir áhugasama þá er Félagsmiðstöð á vegum Reykjavíkurborgar í fimm mínútna göngufjarlægð að Lindargötu 59, en þar er hægt að fá heitan mat í hádeginu gegn hóflegu gjaldi og ýmsa aðra félagsþjónustu sjá nánar hér: https://reykjavik.is/lindargata-59

Samantekið er þetta afar björt og skemmtileg 4-5 herbergja glæsileg penthouse íbúð með aukinni lofthæð á vinsælum stað í miðborginni og einkabílastæði í lokaðri bílageymslu.  Penthouse íbúð þar sem tilfinningin er eins og í einbýli og það í hjarta Reykjavíkur.

      ALLAR UPPLÝSINGAR VEITA:
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður  í netfanginu gylfi@remax.is og síma 822 5124 
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu gudbjorg@remax.is og síma 897 7712
Byggt 1990
15 m2
Fasteignanúmer
2003547
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
24
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
6.030.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1990
15 m2
Fasteignanúmer
2003547
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
24
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
6.090.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1990
15 m2
Fasteignanúmer
2003547
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
24
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Brunabótamat
5.800.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Laugavegur 96
101 Reykjavík
145.9 m2
Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi
212
753 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Jöklasel 27
109 Reykjavík
224.5 m2
Raðhús
614
530 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Dugguvogur 1 - Íbúð 307
104 Reykjavík
134.6 m2
Fjölbýlishús með lyftu
514
802 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Dugguvogur 1 - Íbúð 407
104 Reykjavík
141.7 m2
Fjölbýlishús með lyftu
514
783 þ.kr./m2
110.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2025 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin