Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX kynnir í einkasölu: FÍFUSEL 18, 109 REYKJAVÍKFalleg og vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á þriðju hæð í Seljahverfinu í Reykjavík. Eignin er með stóru og björtu alrými með samliggjandi stofu og borðstofu. Rúmgott eldhús með góðu skápa- og vinnuplássi. Þrjú svefnherbergi, baðherbergi með bæði baðkari og sturtu og þvottaherbergi innan eignar.
Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 103,9 fm. Íbúðin er skráð 98,2 fm og geymsla í kjallara 5,7 fm. Eignin hefur fastanúmerið 205-6454 og selst ásamt öllu því sem eigninni fylgir og fylgja ber, þar með talið tilheyrandi lóðaréttindum. Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2027 er kr. 65.850.000,-
Nánari lýsing:Frá stigagangi er gengið inn í hol með flísum á gólfi og þar er líka fataskápur frá Ikea sem má fylgja.
Stofa og borðstofa með stórum gluggum og parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á 8,1 fm svalir.
Eldhús er rúmgott með nýlegri hvítri Ikea innréttingu sem hefur gott skápa- og vinnupláss. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi með dúk á gólfi og miklu skápaplássi.
Tvö minni svefnherbergi bæði með parketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt með rauðum flísum og dúkur á gólfi. Nýleg hvít innrétting frá Ikea. Á baðherbergi er bæði baðkar og sturta.
Þvottaherbergi með góðri aðstöðu er innan eignar.
Sér geymsla er í sameign og einnig sameiginleg hjólag- og vagnageymsla.
Það er búið að leggja lagnir fyrir bílhleðslu í jörðu, þarf bara að kaupa eða leigja stöðvar ef hugur er í eigendum í hússins að gera það.
Stutt í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, heilsugæslu, matvöruverslanir o.fl.SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D (Ekki er þörf á sérstöku forriti)
Fyrir söluyfirlit og allar nánari upplýsingar, hafðu samband:
Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali, s.699 6617, katrin@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi - Einstaklingar 0,8% af heildarfasteignamati - Lögaðilar 1,6% (fyrstu kaup einstaklinga 0,4%)
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
- Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
- Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunnar.