RE/MAX kynnir í einkasölu: Fallega 3-4 herbergja íbúð á 1. hæð að Álfaskeiði 37 í Hafnarfirði. Í kjallara er 16,7 ferm. herbergi/geymslu með gluggum sem innangengt er úr horni í stofu með parketlögðum hringstiga. Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu er íbúðin 80,7 ferm. en herbergi 16,7 ferm. og geymsla 3,3 ferm. í kjallara eru ekki inn í ferm. tölu íbúðarinnar.
Pantaðu skoðun hjá Hauki lgf í s: 699-2900 eða á haukur@remax.is
Smelltu hér til að fá söluyfirlit strax!Nánari lýsing: Anddyri/hol með fataskáp.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi flísalagt með sturtu.
Barnaherbergi sem notað er sem fataherbergi/snyrtiherbergi.
Glæsilegt eldhús með með nýlegri innréttingu, stór eyja.
Stofa með parketi á gólfi.
Barnaherbergi/geymsla í kjallara sem innangengt er í úr stofu með parketlögðum hringstiga.
Gólfefni íbúðarinnar er nýlegt parket fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt.
Sér geymsla í kjallara ásamt sameiginlegu þvottahúsi, köld geymsla undir stiga sem er séreign íbúðarinnar.
Endurbætur:
2016: Þakjárn og klæðning endurnýjað.
2022: Nýtt parket á allri íbúðinni.
2022: Nýtt eldhús.
2023: Herbergi breytt í fataherbergi nýir skápar.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Haukur Hauksson lögg. fasteignasali hjá RE/MAX í s: 699-2900 eða á haukur@remax.is________________________
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
__________________________
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk