RE/MAX og Guðrún Þórhalla löggiltir fasteignasali kynna: Fallega og vandaða, nýlega 3ja herbergja íbúð í vönduðu fjölbýlishúsi við Hringhamar 35 í Hafnarfirði. Íbúðin er 79,9 fm., 3ja herbergja á fyrstu hæð með skjólgóðum viðarpalli og sér geymslu í sameign sem er 7 fm. Virkilega falleg og vel um gengin íbúð sem hægt er að mæla með.
Grunn- og leikskólar eru í nágrenni og hverfið í nálægð við náttúru og er staðsetningin einstök með tilliti til útivistar. Í næsta nágrenni er Ástjörn, Hvaleyrarvatn og ein vinsælasta gönguleiðin í Hafnarfirði, upp á Helgafell. Íbúðin getur verið laus fljótlega.
***Fasteignamat næsta árs, 2026 verður 62.500.000.-.***Hér getur þú skoðað vídeó af þessari fallegu eign.Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla í síma 820-0490 eða með tölvupósti á netfangið gudrun@remax.is
Frekari upplýsingar um eignirnar:Forstofa með rúmgóðum fataskáp.
Stofa/eldhús og borðstofa er í opnu og fallegu rými með útgengi út á rúmgóðan viðarpall.
Eldhús: Falleg eldhúsinnrétting með eyju, Innréttingin er frá Arens með millibrúnum lit og ljósum efri skápum. Eldhústæki eru frá AEG frá Ormsson.
Baðherbergi: Góð baðinnrétting. Flísar á gólfi og hluta af veggjum. Salernið er upphengt og innbyggt. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi.
Svefnherbergi: Rúmgott er með góðum skápum, parket á gólfi.
Barnaherbergi: Með fataskáp og parket á gólfi.
Geymsla: Góð 7 fm. geymsla fylgir íbúðinni.
Gott aðgengi að eigninni og mörg bílastæði á bílaplani við húsið.
Efnisval eignar:· Gólfefni, harðparket og flísar
· Fataskápar og innréttingar frá ARENS
Sameign: Hjóla og vagnageymsla.
Virkilega falleg og vel umgengin nýleg íbúð sem hægt er að mæla með.
Grunn- og leikskólar eru í nágrenni og eru öruggar göngu- og hjólaleiðir að þeim. Hverfið er í nálægð við náttúru og er staðsetningin einstök með tilliti til útivistar. Í næsta nágrenni er Ástjörn, Hvaleyrarvatn og ein vinsælasta gönguleiðin í Hafnarfirði, upp á Helgafell.
Frekari upplýsingar um eignina veitir Guðrún Þórhalla í síma 820-0490 eða með tölvupósti á netfangið gudrun@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.