Magnús Már Lúðvíksson og RE/MAX fasteignasala kynna: Fallega, bjarta og vel skipulagða 3. herbergja íbúð á 1. hæð með rúmgóðum 38,1 fm sérafnotareit í suður ásamt heitum potti.
Skráning eignar: Íbúð 105,4 fm, geymsla 11,9 fm samtals: 117,7
Bókið skoðun hjá Magga í síma 699-2010 eða maggi@remax.is
Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, handklæðaofn, sturtuklefi með innbyggðum tækjum, innrétting undir og við handlaug, gott borðpláss og stór spegill með innfelldri lýsingu, stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, góðir skápar.
Herbergi: 9,5 fm, Parket á gólfi.
Borðstofa: Parket á gólfi, opin og björt, útegengt út á sérafnotareit.
Eldhús: Parket á gólfi, mjög gott skápa- og borðpláss, innfeldur ísskápur, innfelld uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, eyja með með helluborði og Elica gufugleypu ásamt góðu sætisplássi.
Stofa: Parket á gólfi, björt, opin við eldhús.
Hjónaherbergi: 15,1 fm, parket á gólfi, rúmgott ásamt fataherbergi.
Garður: 38,1 fm sérafnotareitur með skjólveggjum í suður, rafmagnspottur, gert ráð fyrir svalalokun á teikningum.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign.
Hjóla- og vagna geymsla: Sameiginleg í sameign.
Bílastæði: Næg bílastæði, rafhleðslustöðvar á bílastæðum fyrir íbúa
Grunn- og leikskólar í göngufæri ásamt íþróttastarf Breiðabliks.
Allur frágangur er vandaður og er húsið einangrað að utan og klætt með álklæðningu.
Tvöfalt loftræstikerfi, veggir milli íbúða eru með aukinni þykkt til að ná fram aukinni hljóðeinangrun um 25 cm í stað 18-20 cm,
veggir innan íbúðar þ.e. milli herbergja eru einangraðir með tvöföldum gipsplötum, hljóðeinangrandi dúkur undir flísum
á baðherbergi, gólf á baðherbergi er lægra til að hindra vatnstjón.
Fasteignamat 2026: 87.000.000 kr.
(2020) Byggingaraðili var Nónhæð ehf. (K.S. Verktakar).
Félagið er í eigu Kristjáns Snorrasonar húsasmíðameistara sem hefur síðan árið 1991 starfað undir nafni KS verktakar ehf.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Már Lúðvíksson í síma 699-2010 eða maggi@remax.is