RE/MAX Ísland logo
Opið hús:18. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 13. ágúst 2026
Söluyfirlit

Hjálmholt 12

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
242.3 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
197.900.000 kr.
Fermetraverð
816.756 kr./m2
Fasteignamat
152.300.000 kr.
Brunabótamat
128.500.000 kr.
RE/MAX
Mynd af Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Guðlaugur Jónas Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1964
Þvottahús
Garður
Sérinngangur
Fasteignanúmer
2012584
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Ný rafmagnstafla og 3 fasa rafmagn sett upp árið 2020
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Gluggar eru upprunalegir, gler endurnýjað að hluta til árið 2020 og 2022
Þak
Þakið var tekið í gegn fyrir c.a 12-14 árum
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei, en svalahurð sem vísa út á sérafnotaflöt íbúðar
Upphitun
Hitaveita, gólfhiti inn á baðherbergi og í anddyri og í aukaíbúð
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Vel skipulögð og glæsileg 242,3 fm. hæð með sérinngangi í mjög fallegu tvíbýlishúsi með innbyggðum bílskúr á neðri hæð og aukaíbúð með sérinngangi við Hjálmholt 12, 105 Reykjavík. 

Hús teiknað af Sigvalda Thordarson arkitekt. Eftirsótt staðsetning innst í botnlanga í einni af þessum flottu földum göt­um Reykja­vík­ur. Skv. Þjóðskrá Íslands er íbúð á hæð 171,0 fm. bílskúr er 31,1 fm og aukaíbúð 40,2 eða samtals 242,3 fm.

Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.is

Smelltu á linkinn til að skoða íbúðina í 3D


Smelltu á linkinn til að skoða auka íbúðina í 3D

Skipulag eignar: Hæðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi (möguleiki á því fjórða með því að setja upp einn millivegg), eldhús, gestasnyrting, baðherbergi, borðstofa og stofur með arinn og útengi út á verönd. Út frá sameign er gengið niður, þar er sér þvottahús, sér geymsla og bílskúr. Þar að auki er aukaíbúð með sér inngangi sem tilheyrir eigninni sem núverandi eigendur hafa haft í útleigu. 

Nánari lýsing: 
Komið er inn í forstofu með fatahengi og ljósgráum flísum á gólfi og gólfhita. Inn af forstofu er gestasnyrting með upphengt salerni. handlaug og ljósgráar flísar á gólfi. Innangengt er frá forstofu inn í eldhús. Inn af forstofu er komið í rúmgóða og bjarta borðstofu sem er opin og tengist tvískiptri stofu. Aðgengi er frá borðstofu inn í eldhús og inn í svefnherbergisálmu. Parket á gólfi. Í stofunum tveimur er arinn og innbyggt hansa hillukerfi úr tekki á vegg. Á veggjum er tekk panell sem gefur skemmtilegan svip. Parket á gólfi. Frá stofunni er gengið út á suðurpall sem er sérafnotareitur íbúðarinnar. Eldhús er rúmgott og bjart með hvítum neðri skápum, tekk efri skápum og borðplötu úr eik með helluborði. Gott skápapláss, uppþvottavél, innbyggður ísskápur og sér innbyggður frystir undir borðborðplötu. Bökunarofn og örbylgjuofn í vinnuhæð. Gluggar gefa góða birtu inn og snúa út í framgarðinn. Ljósgráar flísar á gólfi með gólfhita. Inn af borðstofu er svefnherbergisálma með parket á gólfi. Aðgengi þaðan inn í svefnherbergin þrjú ( fjögur) og baðherbergi. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með ljósgráum flísum. Gólfhiti, handklæðaofn, baðkar og sér sturta. Hvít innrétting með skúffum og handlaug, speglaskápur þar fyrir ofan og hvítur baðskápur þar við hlið. Stór opnanlegur gluggi sem tryggir góða loftun og gefur góða birtu inn. Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með er tekk fataskáp og parket á gólfi. Frá hjónaherbergi er útgangur út á verönd. Annað svefnherbergið er rúmgott og bjart, útbúið einum fataskápi með parket á gólfi. Það var upphaflega tvö minni herbergi, auðvelt væri að breyta því aftur i tvö herbergi. Þriðja/fjórða herbergið er með parket á gólfi og aðgengi bæði frá borðstofu og frá svefnherbergisálmu. Frá forstofu eru tröppur niður í kjallara. Þar eru tvær sérgeymslur og útgangur út á plan fyrir framan bílskúra. í Annarri geymslunni er búið að útbúa sér þvottahúsaðstöðu með tengi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. 
Bílskúrinn er með heitt og kalt vatn. Upphitaður, rúmgóður með rafdrifna bílskúrshurð og 3fasa rafmagn ásamt hleðslustöð.

Frá bakgarði er (aukaíbúð) studioíbúð með sérinngangi. Íbúðin var að miklu leyti endurnýjuð árið 2020 s.s lagnir, bað, þvottahús, eldhús, gólfefni og gólfhiti setur í gólf. Skipulag er stofa/herbergi í sama rými, gengið er svo í gegnum eldhúsið að baðherbergi og þvottarými.

Varðandi húsið og ástand þess, þá var múr utanhús yfirfarið árið 2021 og því fylgt eftir með frekara viðhaldi/yfirferð að utan árið 2026. Gler hefur verið endurnýjað eftir þörfum á árunum 2020-2025. Þakið var tekið í gegn fyrir 12-14 árum. Innanhús var eldhús uppfært árið 2013, eldhústæki endurnýjuð árið 2020. Innbyggður ísskápur og innbyggður frystir enndurnýjað árið 2025. Ný rafmagnstafla og 3fasa rafmagn sett upp árið 2020. Gólfefni og baðherbergi á aðalhæð endurnýjuð árið 2020. Studioíbúð endurnýjuð að miklu leyti árið 2020. Skipt um jarðveg/torf  og hekk í framgarði 2020. Viðhald á gluggum var sinnt árin 2025-2026.

Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.is og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is

Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.  Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2.  Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3.  Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-






 
Fasteignanúmer
2012584

Sambærilegar eignir

Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Friggjarbrunnur 7
113 Reykjavík
250.8 m2
Einbýlishús á tveimur hæðum
614
717 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Lautarvegur 8
108 Reykjavík
254.4 m2
Hæð í þríbýlishúsi
634
786 þ.kr./m2
199.900.000 kr.
Opna eign
3D Sýn
Image
Opna eign
Baughús 4
112 Reykjavík
245.2 m2
Einbýlishús
624
850 þ.kr./m2
208.500.000 kr.
Opna eign
Image
Opna eign
Stefnisvogur 30
104 Reykjavík
203.2 m2
Fjölbýlishús með lyftu
423
935 þ.kr./m2
189.900.000 kr.
RE/MAX Ísland logo
Við vinnum fyrir þig
Hafðu samband
skrifstofa@remax.isS: 4777777
Skeifunni 17
kt. 480506-0810
Hlekkir
Samfélagsmiðlar
© Copyright 2026 - RE/MAX Ísland
Knúið af
Fasteignaleitin