Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Virkilega huggulegt og smekklegt 98,9 fm. sumarhús (Hvammur 26) með sér 20,7 fm. gestahúsi (skráð sem baðhús), saunu, heitum potti, kaldri tunnu og útisturtu á 7.595,0 fm. eignarlóð, staðsett í Ásgarðslandi, Grímsnesi.
Samtals stærð á sumarhúsi og baðhúsi er 119,6 fm. Auk þess er komið leyfi fyrir því að byggja 40,0 fm. sér gestahús á lóðinni. (búið er að greiða fyrir byggingarleyfið) Skýringarmynd, grunnmynd og afstöðu teikning mun fylgja með söluyfirliti.
Einstaklega vel staðsett sumarhús með mikið og fallegt útsýni. Sjón er sögu ríkari.
Stór verönd umlykur húsið allt hús og lóðin allt í kring er virkilega fallega ræktuð í bland við villta náttúruna, niðurgrafið trampólín og grasflöt. Á hluta lóðarinnar, var svo fyllt upp með steinum frá Hornafirði og fallegum í trjágróðri til að mynd litla skrúðgarðs stemningu með lýsingu í.
Góð aðkoma er að húsinu með aðrein með trjágróðri allt í kring og gott pláss fyrir bílastæði. Allt innbú án persónulegra muna getur fylgt með í kaupum þess, sé þess óskað.
* 7.592,0 fm. eignarlóð á einstökum stað með hitaveitu.
* Hjónasvíta með sér salerni.
* Herbergi, svefnloft og stórt og flott baðherbergi.
* Flott alrými með stofu, eldhúsi og borðstofu. Kamína og glæsilegt útsýni.
* Sér rúmgott og gott gestahús (skrá sem baðhús), góð geymsla þar undir.
* Glæsileg lóð, góð aðkoma og næg bílastæði.
* Búið er að greiða fyrir byggingarleyfi á 40,0 fm. sér gestahúsi.
* Rafstýrt hlið er inn á sumarhúslandið.
* Frábær staðsetning.
Húsið er mikið endurnýjað, núverandi eigendur hafa átt húsið frá 2012. Á árunum 2019 - 2021 voru eftirfarandi framkvæmdir gerðar: Sumarhúsið var stækkað, skipt var um allt rafmagn og allar vatnslagnir. Hitaþræðir settir í allar lagnir frá húsinu, þær eru allar staðsettar í lagna-rými undir gestahúsinu. Allar lagnir nýjar. Pottakerfi sett upp frá Trefjum með Danfoss stýringum. Inn í sumarhúsinu var baðherbergið stækkað og hluti af svefnlofti opnað. Skipt var um allan panil, alla ofna o.fl. Bústaðurinn var allur álklæddur að utan. Eldra útihús var rifið niður og byggt upp nýtt gestahús á hús á steyptum grunni. Ný verönd smíðuðu í kringum allt húsið. Grafið var og komið fyrir öflugri rotþró. Skipt var um öll tæki og tól þ.e nýjar innréttingar, salerni, eldavél, ísskápar o.fl. Sett var niður sauna tunna frá saunu ehf. Um er að ræða saunu með cedrus við ásamt tylö ofni 8kw með wifi. Garðurinn þ.e mest allt gras í kringum bústaðinn var fjarlægt, hluti haldin eftir fyrir fótboltaleik og leikvöll. Jarðvegur var allur að hluta til, efnisskiptur og sett grús og plast kerfi ofan á. Fyllt var þar upp með steinum frá Hornafirði og settur upp fallegur og sérvalin trjágróður með lýsingu í.
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið gulli@remax.isSmelltu á linkinn til að skoða sumarhúsið í 3D
Nánari lýsing: Á gólfum er harðparket á öllum rýmum, að undanskildu baðherbergjum og þvottahúsi, þar eru flísar. Gengið er inn í forstofu með fatahengi og aðgengi þaðan inn í önnur rými.
Frá forstofu er gengið inn í rúmgóða hjónasvítu með tvíbreiðu rúmi, fataskáp, sjónvarpi á vegg og sér salerni með opnanlegum glugga, handklæðaofni, upphengdu salerni og baðinnréttingu með handlaug. Þvottahús þar við hlið er með þvottavél, þurrkara og auka ísskáp. Útgangur er út á verönd frá þvottahúsi. Frá forstofu er gengið inn í hol, þar á hægri hönd er mjög rúmgott svefnherbergi með tvíbreiðu rúmi. Þar við hlið er mjög stórt og gott baðherbergi með gluggum á tveimur hliðum og með útgengi út á verönd. Stór sturta með sturtuþili og flísum ásamt innbyggðum blöndunartækjum. Handklæðaofn, upphengt salerni og baðinnrétting með handlaug. Frá holi er svo aðgengi inn í mjög rúmgott og bjart alrými með hátt til lofts og einstaklega fallegu útsýni. Alrýmið samanstendur af L-laga eldhúsi með eyju, dökk innrétting með ljósum stein á borðum, innfelld uppþvottavél, hvítur postulíns vaskur. Eldavél með gashellum og innfelldur kælir með frystir í. Stórt og gott borðstofu borðstofuborð með stóla fyrir átta manns. Hornsófi, sófa stóll, Tv. og kamína. Útgengi er út frá stofu út á timburverönd, stór verönd sem umlykur allt húsið. Framendinn á húsinu sem kemur í framhaldi af stofunni er yfirbyggður með skjólveggjum með gluggum í, á hvorri hlið.
Gestahúsið (skráð sem baðhús) er sér, mjög rúmgott og bjart með tvíbreiðu rúmi og harðparket á gólfi. Mögulegt væri að setja þar upp sér baðherbergi, þar sem hægt væri að setja lagnir frá lagnagrými/geymslu sem staðsett er þar undir húsinu.
Á lóðinni er sem áður segir, sauna, heitur pottur, köld tunna og útisturta.
Einstaklega vel útfært sumarhús, vel staðsett og með flott útsýni í friðsælu umhverfi.
Húsið/eigendur þess eru í félagi sumarhúsaeigenda við Ásskóga, Ásgarðslæk, Áshvamma, Austurbrúnir, Hraunhvamma, Hvamma og Vesturbrúnir. Árgjald þar er 20.000 kr.
Nánari upplýsingar veita:Guðlaugur J. Guðlaugsson, löggiltur fasteignasali, í síma 661-6056 / gulli@remax.is
Gunnar Sverrir, löggiltur fasteignasali, í síma 862-2001 / gunnar@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-